Ráđgjafarmiđstöđvar

Skráđu ţig á póstlistann okkar.

Ráđgjafarmiđstöđvar

 

Sjónarhóll ráðgjafarmiðstöð að Háaleitisbraut 13; 

http://www.sjonarholl.net/ 

Sérhæfð fjölskylduráðgjöf sem miðar að því að greiða götu fjölskyldna barna með sérþarfir í flóknu umhverfi stofnana og þjónustuaðila. Eitt af markmiðum Sjónarhóls er að koma á samstarfi allra þeirra aðila sem geta tengst máli einnar fjölskyldu, samþættingu þjónustunnar og eftirfylgd.

Sími 535-1900.

 

 

Fjölskyldumiðstöðin á Háaleitisbraut 13;

http://www.barnivanda.is/

Þar er bæði ráðgjöf og hópastarf fyrir fjölskyldur í vanda. 

Sími 511-1599.

 

 

Eirð sf. Fræðslu-og ráðgjafarþjónusta um uppeldi og geðheilsu barna og unglinga; 

Þar starfar þverfaglegt teymi sérfræðinga sem kemur að greiningu og veitir ráðgjöf vegna ADHD. Eirð er með fræðslu fyrir foreldra og fagfólk auk sérhæfðra námskeiða fyrir foreldra barna með ADHD og skyldar raskanir. Eirð starfar að hluta til í Heilsumiðstöð Álftamýri 1-5.

netfang eird@isl.is

Nánari upplýsingar um fagfólk innan Eirðar er hér: hlekkur í símaskrá

Í fréttabréfi ADHD samtakanna 1. tbl. 19. árg. 2006 er kynning á meðlimum Eirðar. Sjá hér

 

Systkinasmiðjan

http://www.verumsaman.is 

 

Markmið smiðjunnar eru:

  • að veita systkinum barna með sérþarfir tækifæri til að hitta önnur systkini í skipulögðu og skemmtilegu umhverfi. að veita börnunum tækifæri til að ræða við jafnaldra sína á jákvæðan hátt um margt sem tengist því að eiga systkini með sérþarfir.
  • að veita börnunum innsýn í það hvernig megi takast á við þær margbreytilegu aðstæður sem fylgja því að eiga systkini með sérþarfir.
  • að veita börnunum tækifæri til að læra meira
     um fötlun eða veikindi systkina sinna.
  • að veita foreldrum og fagfólki tækifæri til að kynnast því hvernig það er í raun og veru að alast upp með fötluðu eða veiku systkini, þ.e. þeirri sérstöku áskorun að alast upp við slíkar aðstæður. 
  •  

 

Hitt húsið

Ný Leið. Ráðgjöf.

www.nyleid.is

Markmið þjónustunnar er að veita ungu fólki, sem á í vímuefnavanda eða er í áhættuhópi og fjölskyldum þess, ráðgjöf og meðferð. Unnið er eftir aðferðum sem miða að því að skapa leiðir og verkfæri sem gerir ungt fólk hæfara til að takast á við lífið.

 

Brú milli menningarheima er alþjóðlegur hópur. Þar hittist ungt fólk alls staðar að úr heiminum sem á það sameiginlegt að búa á Íslandi. Íslendingar eru velkomnir. Sjá nánar www.hitthusid.is

 

Ungt fólk með Ungana sína er hópur ungra foreldra sem hittist einu sinni í viku.

Sjá nánar www.hitthusid.is

 

 

Kvíðameðferðarstöðin

http://www.ksm.is

Kvíðameðferðarstöðin sérhæfir sig í meðferð við kvíða og skyldum erfiðleikum hjá fullorðnum.

 

 

Ylfa: ráðgjöf og nærþjónusta

http://www.ylfa.is

Markmið nærþjónustu er að bæta lífsgæði og auka möguleika á þátttöku í samfélaginu á jafnræðisgrundvelli.

Hjá fyrirtækinu er hægt að fá ráðgjöf varðandi málefni einstaklinga með þroskafrávik og fjölskyldna þeirra:

  • Heimaráðgjöf:
  • Skólaráðgjöf:
  • Tómstundaráðgjöf:
  • Búseturáðgjöf:
  • Vinnustaðaráðgjöf

Ingibjörg G. Guðrúnardóttir, Sóley Guðmundsdóttir, Hildur Eggertsdóttir og Sigrún Sigurðardóttir

S: 897 8089

Svćđi

  • Til

     stuđnings börnum

     

     og

     fullorđnum

     međ athyglisbrest, ofvirkni og skyldar raskanir