Lög ADHD samtakanna
1. grein – heiti félagsins og starfssviðNafn samtakanna er: ADHD samtökin. ADHD er alþjóðleg skammstöfun fyrir Attention Deficit Hyperactivity Disorder eða á íslensku, athyglisbrestur með eða án ofvirkni og skyldar raskanir. ADHD samtökin eru landssamtök. Heimili þeirra og varnarþing er í Reykjavík. 2. grein – merki samtakanna er:3. grein – hlutverkHlutverk samtakanna er að vera fræðslu- og stuðningssamtök um málefni ADHD. 4. grein – félagsmennAllir geta orðið félagar í ADHD samtökunum sem orðnir eru 18 ára, foreldrar, aðstandendur og þeir sem greinst hafa með ADHD auk styrktarfélaga og annars áhugafólks um ADHD. 5. grein – félagsgjöldFélagsmönnum er skylt að greiða það félagsgjald sem aðalfundur ákveður . Ef félagsmaður er með ógreidd félagsgjöld samtals í 3 ár er heimilt að fella félagsmann út af félagaskrá án viðvörunar. 6. grein – aðalfundurAðalfundur hefur æðsta vald í málefnum samtakanna. Aðalfund skal halda í mars mánuði ár hvert. Til hans skal boðað með sérstöku fundarboði sem sent er félagsmönnum með að minnsta kosti viku fyrirvara og er hann þá lögmætur. Sömuleiðis skal tilkynnt um hann í helstu dagblöðum. Afl atkvæða ræður úrslitum mála, nema annars sé sérstaklega getið í lögum þessum, sbr. 7. grein.
Þessi mál skulu tekin til meðferðar á aðalfundi:
Allar kosningar skulu vera skriflegar ef fleiri en eitt framboð kemur fram. Fundargerð skal skráð um störf aðalfundar.
Lögum samtakanna verður aðeins breytt á aðalfundi þeirra. Í fundarboði skal þess getið sérstaklega að tillaga til lagabreytinga verði tekin til meðferðar á fundinum. Lagabreyting telst samþykkt ef ¾ hlutar fundarmanna á löglega boðuðum aðalfundi greiða henni atkvæði. Þannig tillögur verða að hafa borist félagsstjórn fyrir 20. janúar ár hvert. Sama á við um framboð til stjórnarsetu.
7. grein – stjórn samtakannaStjórn samtakanna er skipuð sjö mönnum og tveim til vara. Formann skal kjósa sérstaklega og er hann kosinn til eins árs í senn. Kjörtímabil annarra aðalstjórnarmanna eru tvö ár og skiptir stjórnin með sér verkum, þannig að einn er varaformaður, einn er gjaldkeri, einn er ritari og þrír eru meðstjórnendur. Í aðalstjórn skal kjósa þannig: Fyrra árið eru kosnir tveir aðalmenn og seinna árið tveir aðalmenn og síðan koll af kolli. Varamenn skal kjósa til eins árs í senn. Á fyrsta stjórnarfundi eftir aðalfund skal stjórn skipta með sér verkum. Varamenn skulu boðaðir á alla stjórnarfundi. Stjórn samtakanna ræður málefnum félagsins með þeim takmörkunum er lög þessi setja. Hún tekur nánari ákvarðanir um starfsemi samtakanna og ber ábyrgð á fjárreiðum þeirra. Hún skuldbindur samtökin gagnvart öðrum aðila. Gerðir stjórnarinnar skulu jafnan bókfærðar. Stjórnin getur tekið ákvarðanir þegar að minnsta kosti fimm aðalstjórnarmenn eru mættir. Aðal- og varamönnum skal sent endurrit fundargerða eftir hvern stjórnarfund. Stjórn samtakanna skal halda að minnsta kosti fimm stjórnarfundi á ári hverju. 8. grein – almennir félagsfundirKalla skal til fundar þegar stjórn eða tíu félagar fara þess á leit. 9. grein – félagið leystFélagið má leysa upp á aðalfundi ef það er samþykkt af 2/3 félaga. Ef ákveðið verður að leysa upp félagið, ber aðalfundi að sjá til þess að eigur félagsins verði nýttar til þess að auka skilning á og fræðslu um ADHD.
Lögin voru samþykkt á stofnfundi 7. apríl 1988. Breyting var gerð á 5. grein á aðalfundi 28. febrúar 1989. Breyting var gerð á 8 grein á aðalfundi 1. mars 2000 Breyting var gerð á nafni félagsins á aðalfundi 4. mars 2003. Breyting var gerð á nafni félagsins á aðalfundi 9. mars 2004 og öllum 9 greinum laganna eins og þær birtast hér. Breyting var gerð á 7.gr. laganna á aðalfundi 21. mars 2007. |
Til |
stuđnings börnum |
|
og fullorđnum
međ athyglisbrest, ofvirkni og skyldar raskanir |
