Rannsóknir

Skráđu ţig á póstlistann okkar.

Rannsóknir

Upplýsingar um þær rannsóknir sem hafa verið gerðar í tengslum við ADHD

 

Notkun metýlfenídats meðal barna á Íslandi 1989-2006

Markmið rannsóknarinnar var að greina algengi og þróun metýlfenídatnotkunar meðal barna á Íslandi frá árinu 1989 til 2006.
Mynstur notkunar var greint eftir kyni, aldri og búsetu sjúklings, verkunartíma lyfs og sérgrein læknis sem ávísaði lyfinu.

 

Rannsakendur: Matthías Halldórsson, aðstoðarlandlæknir, Helga Zoëga, aðferðafræðingur og Gísli Baldursson, barna og unglingageðlæknir.

 

 

Shaw study on delay of cortical development

Niðurstaða rannsóknarinnar er fyrsta taugalíffræðilega staðfestingin á seinkun í þroska heilans í ADHD. Rannsóknarniðurstöðurnar sýndu með afgerandi hætti þriggja ára seinkun í þroska framheila barna með ADHD en þroski framheilans er einmitt mikilvægur varðandi athygli, hömlur, vinnsluminni og fleiri hugræn ferli.

 

Rannsakendur: P. Shaw, K. Eckstrand, W. Sharp, J. Blumenthal, J.P. Lerch, D. Greenstein, L. Clasen, A. Evans, J. Giedd and J. L. Rapoport.

 

 

Páll Magnússon og Haukur Örvar Pálmason sálfræðingar á BUGL voru fengnir til að vinna úrdrátt á íslensku úr greininni sem birtist hér.

 

Samfélagsverðlaun Fréttablaðsins

Verðlaunin eru eingöngu viðurkenning en í úrskurði dómefndar segir: "Verðlaun í þessum flokki fær Gauraflokkurinn í Vatnaskógi fyrir frumkvæði og óeigingjarnt starf við að bjóða drengjum með ADHD upp á sumarbúðadvöl." 

Hér eru birtar niðurstöður úr könnun sem gerð var árið 2010 meðal foreldra drengja sem tóku þátt í Gauraflokknum.

 

Rannsakendur: Bóas Valdórsson, Ársæll Aðalbergsson, Jón Grétar Þórsson.


 

 

 

Svćđi

  • Til

     stuđnings börnum

     

     og

     fullorđnum

     međ athyglisbrest, ofvirkni og skyldar raskanir