Málþing ADHD samtakanna 2026

Málþing ADHD samtakanna 30. október 2026

Veislusmárinn - Sporhamrar 3, 112 Reykjavík og í beinu streymi.
 
ADHD getur fylgt ýmsar áskoranir sem birtast meðal annars í námi, starfi, nánum samböndum, foreldrahlutverki og félagslífi. Þessar aðstæður geta orðið flóknar og krefjandi. Ofangreind áhrif eru ekki alltaf sýnileg öðrum sem hefur meðal annars leitt til þess að langur tími hefur liðið áður en einstaklingar með ADHD mæti skilningi, fái stuðning eða greiningu.
Á málþinginu verður fjallað um þegar ADHD fylgir út frá uppeldi, atvinnu, fjármálum, samböndum, sjálfsmynd, jaðarsetningu. Lögð verður áhersla á að varpa ljósi á áskoranir sem geta fylgt ADHD og miðla reynslu, þekkingu og lausnum sem nýtast í raunverulegum aðstæðum.
 
Málþingið er ætlað fullorðnum með ADHD og aðstandendum sem og fagfólki sem starfar með eða þjónusta fólk með ADHD.
 

Dagskrá

10:00 – 10:15

Setning málþings

 

Vilhjálmur Hjálmarsson formaður ADHD samtakanna

10:15 – 10:30

Ávarp Stefán Magnússon varaformaður ÖBI

10:30 – 10:50

Afhending Hvatningarverðlauna

10:50 – 11:30 Hvert fóru peningarnir? - Frá hvatvísi og frestun í átt að betri líðan
 

Valdis Hrönn Berg fjárhagsmarkþjálfi

11:30 – 12:10 Þegar álagið verður of mikið - ADHD og langvarandi streita
 

Guðrún Rakel Eiríksdóttir, sviðsstjóri forvarna hjá VIRK

12:10 – 12:30

Hádegishlé

12:30 – 13:10 Frá togstreitu til tengingar - ADHD og náin sambönd
 

Anna Elísa Gunnarsdóttir félagsráðgjafi og Arnór Heiðarsson

13:10 – 13:50

Þegar ADHD fylgir - uppeldi, tilfinningar og taugakerfið

 

Sigrún Birna Sigurðardóttir sálfræðingur

13:50 – 14:00 Málþingsslit

 

Fundarstýra: Birna Rún Eiríksdóttir leikkona og uppistandari

Almennt verð: 12.000-
Félagsfólk: 9.000.-

*Kennitala á við ef um einstakling með íslenskt rískisfang er að ræða / Applicable only to those with a Icelandic social security number

Almennt verð / General admission

Athugið að aðeins skal velja einn reit hér að neðan / Select from one of the following two options

Verð: 12.000 ISK
Verð: 9.000 ISK
captcha