
Aukanámskeið Áfram stelpur hefst 19. apríl 2021
Vegna gildandi sóttvarnarreglna var ekki hægt að skrá fleiri en 20 á námskeiðið sem hefst 19. janúar og eru þau sæti þegar frátekin. Vegna mikillar þátttöku hafa ADHD samtökin ákveðið að bjóða upp á aukanámskeið Áfram stelpur! Námskeiðið hefst 19. apríl næstkomandi. Þeir sem skráðu sig á Áfram stelpur og komust ekki á námskeiðið í janúar hafa forgang á næsta námskeið. Áhugasömum er einnig bent á námskeiðið Taktu stjórnina, fyrir fullorðna með ADHD, sem hefst 4. apríl nk.
Skráning er hafin á nýtt fræðslu- og sjálfsstyrkingarnámskeið ADHD samtakanna – Áfram stelpur! Námskeiðið stendur í 10 klukkustundir - fjögur skipti, 2,5 klukkukstundir í senn og verður það haldið 19. og 26. apríl og 3. og 10. maí 2021 (sjá nánar skipulag hér fyrir neðan). Fjöldi þátttakenda er takmarkaður - fyrstur kemur, fyrstur fær!
Markmið námskeiðs:
Námskeiðinu er ætlað að veita fræðslu um ADHD einkenni kvenna, algengar fylgiraskanir þeirra og ólíkar birtingarmyndir röskunarinnar. Áhersla er lögð á þau hugrænu ferli sem liggja að baki algengum áskorunum sem einstaklingar með ADHD mæta í daglegu lífi, hvort sem er í námi, starfi, heimilislífi, félagslegum samskiptum eða uppeldi. Markmið námskeiðsins er að styrkja konur með ADHD í markmiðasetningu, áætlanagerð og skipulagi með það fyrir augum að draga úr streitu og vanmáttarkennd. Námskeiðinu er ætlað að fræða konur um ýmis verkfæri sem nýst geta í þessum tilgangi og veita þjálfun í notkun þeirra í gegnum samtöl og verkefnavinnu.
Námskeiðið verður í húsnæði ADHD samtakanna að Háaleitisbraut 13, 4. hæð. Leiðbeinendur verða Dr. Drífa Björk Guðmundsdóttir sálfræðingur og Elín H. Hinriksdóttir sérkennari.
Skipulag:
- tími mánudagur 19. apríl kl. 19:30 - 22:00
- tími mánudagur 26. apríl kl. 19:30 - 22:00
- tími mánudagur 03. maí kl. 19:30 - 22:00
- tími mánudagur 10. maí kl. 19:30 - 22:00
NÁMSKEIÐSVERÐ:
34.000 kr. fyrir félagsmenn ADHD samtakanna: SKRÁNING HÉR
39.000 kr fyrir aðra: SKRÁNING HÉR
Innifalið í námskeiðsgjaldi er hressing og bók Dr. Ara Tuckman, "Leyndardómar heilans - Láttu verkin tala" sem kostar 5.900 kr. ein og sér.
Félagsmenn í ADHD samtökunum fá afslátt af þátttökugjaldinu, en hægt er að ganga í samtökin hér.
Einnig er hægt að hafa samband við ADHD samtökin, 581 1110 eða adhd@adhd.is