
SKRÁNING HÉR Fræðslunámskeið fyrir aðstandendur barna með ADHD frá 6 til 18 ára aldri verður haldið haustið 2022 í húsnæði ADHD samtakanna að Háaleitisbraut 11-13, 4. hæð og í gegnum fjarfundarbúnað.
Námskeið er haldið laugardaganna 15. og 22. október, frá kl. 10:00-15:00.
Á námskeiðinu er lögð áhersla á að þátttakendur öðlist góðan skilning á hvað er ADHD og fái einföld og hagnýt ráð við uppeldi barna með ADHD. Námskeiðið hentar því vel fyrir alla nána aðstandendur barna með ADHD, mömmur, pabba, fósturforeldra, stjúpforeldra, ömmur, afa og aðra nána. Það er mikill kostur ef allir nánustu aðstandendur geta tekið þátt.
Boðið verður uppá fjarfundarbúnað fyrir þá sem ekki geta mætt á staðinn.
Skipulag og dagskrá:
Fyrri Laugardagur
10:00 – 11:15 Hvað er ADHD?
Sólveig Ásgrímsdóttir sálfræðingur
11:15-11:30 Hlé
11:30 – 12:45 ADHD og nám
Haukur Ö. Pálmasson sálfræðingur
12:45 – 13:30 Matarhlé
13:30 – 14:45 Félagsfærni barna með ADHD, hvað geta foreldrar gert?
Þórdís Bragadóttir sálfræðingur
14:45 – 15:00 Umræður
Seinni Laugardagur
10:00 – 11:15 Lyfjameðferð við ADHD
Ólafur Guðmundsson, barnageðlæknir
11:15 – 12:30 Kvíði og líðan barna með ADHD
Steinunn Anna Sigurjónsdóttir sálfræðingur
12:30 – 13:00 Matarhlé
13:00 – 14:15 Samskipti innan fjölskyldna barna með ADHD
Bóas Valdórsson sálfræðingur
14:15 – 14:45 Umræður
** ATH. uppröðun fyrirlestra og fyrirlesarar gætu breyst.
Hver fyrirlestur er í 45 mín. og síðan umræður og fyrirspurnir í 30 mín.
Félagsmenn í ADHD samtökunum fá verulegan afslátt af þátttökugjaldinu, en hægt er að ganga í samtökin hér.
Einstaklingur Báðir foreldrar / forráðamenn / aðstandendur
Félagsmenn Kr. 23.000 Kr. 33.000
Aðrir Kr. 32.000 Kr. 49.000
SKRÁNING HÉR