
NÓVEMBER NÁMSKEIÐ 2023 (ath fyrsti tíminn er 31. október) - TAKTU STJÓRNINA er námskeið fyrir fullorðna einstaklinga með ADHD
Skráning er hafin á hið sívinsæla færninámskeið ADHD samtakanna - Taktu stjórnina! sem verður haldið 31. október, 7., 14. og 21. nóvember 2023, sjá nánar töflu hér fyrir neðan.
Námskeiðið stendur í 10 klukkustundir - fjögur skipti, 2 og 1/2 klukkukstund í senn frá kl. 17:00-19:30 alla dagana.
Fjöldi þátttakenda er takmarkaður - fyrstur kemur, fyrstur fær!
Á námskeiðinu verður fjallað um eftirfarandi þætti:
Skilningur á ADHD og ólík einkenni
Algengir fylgikvillar
Að sættast við greininguna – styrkleikar og vandkvæði
Markmiðasetning
Félagsleg samskipti almennt
Vinna og nám
Fjármálastjórn
Heimilið
Foreldrahlutverkið og samskipti við maka
Heilbrigt líferni
Markmið námskeiðsins:
Markmiðið er að veita fullorðnum með ADHD helstu upplýsingar um einkenni ADHD og ólíkar birtingarmyndir röskunarinnar. Styrkja einstaklingana í að skipuleggja líf sitt, ná utan um það sem kannski áður hefur farið forgörðum, vinna á streitu og kvíða með upplýsingum, samtölum og æfingum. Veita þátttakendum ákveðin tæki til að líða betur með ADHD í sínu lífi. Setja sér skynsamleg markmið og raunhæfar kröfur. Afraksturinn er betri einstaklingur, huganlega betra og ánægðara foreldri, maki, starfsmaður og borgari.
Námskeiðið verður haldið í húsnæði ADHD samtakanna að Háaleitisbraut 13, 4. hæð.
Leiðbeinendur verða Dr. Drífa Björk Guðmundsdóttir, sálfræðingur og Sigrún Jónsdóttir, ADHD markþjálfi og þroskaþjálfi.
NÓVEMBER NÁMSKEIÐ
Tími |
Dagsetning |
Tímasetning |
1. tími þriðjudagur |
31. október |
17:00 - 19:30 |
2. tími þriðjudagur |
7. nóvember |
17:00 - 19:30 |
3. tími þriðjudagur |
14. nóvember |
17:00 - 19:30 |
4. tími þriðjudagur |
21. nóvember |
17:00 - 19:30 |
Námskeiðsverð
39.000 kr. fyrir félagsmenn ADHD samtakanna: SKRÁNING HÉR
44.000 kr fyrir aðra: SKRÁNING HÉR
Innifalið í námskeiðsgjaldi er hressing og bók Dr. Ara Tuckman, "Leyndardómar heilans - Láttu verkin tala" sem kostar 5.900 kr. ein og sér.
Félagsmenn í ADHD samtökunum fá afslátt af þátttökugjaldinu, en hægt er að ganga í samtökin hér.
Einnig er hægt að hafa samband við ADHD samtökin, 581 1110 eða adhd@adhd.is
Verið velkomin á námskeið hjá ADHD samtökunum!