Sumarnámskeið í Tölvuleikjagerð og Minecraft fyrir 7-10 ára börn

Sumarnámskeið í Tölvuleikjagerð og Minecraft fyrir 7-10 ára börn með ADHD.

Skema í HR og ADHD samtökin halda námskeið í Tölvuleikjagerð og Minecraft. Skema stendur fyrir fjölbreyttum tækninámskeiðum og vinnur auk þess að því markmiði að kennsla í forritun verði í boði í grunn- og framhaldsskólum landsins. Þetta er fyrsta námskeiðið sem ADHD samtökin og Skema bjóða uppá saman. Námskeiðið er tvískipt. Annars vegar verður tölvuleikjagerð í Scratch og hins vegar sköpun í Minecraft. 

Þátttakendur fá að kynnast Scratch forritunarumhverfinu og læra að skapa, forrita og hanna sína eigin tölvuleiki. Scratch er sérsniðið að byrjendum í forritun en þar er notast við sjónrænt forritunarmál sem byggir á litríkum skipanakubbum. Þátttakendur öðlast grunnþekkingu á forritun, stafrænni hönnun og framkvæmd eigin hugmynda.

Minecraft er vinsæll tölvuleikur þar sem eina takmarkið er eigið hugmyndaflug. Þátttakendur fá að læra grunninn í leiknum, ýmis brögð og brellur og vinna saman við að byggja upp samfélag með öðrum. Þátttakendur spila í sama heimi og geta unnið saman við verkefnavinnu. 

Rétt er að taka fram að allir þjálfarar Skemu fara í gegnum ADHD fræðslu hjá samtökunum í þeim tilgangi að mæta betur þörfum þátttakenda.

Námskeiðið verður haldið á Háaleitisbraut 13, 4.hæð í húsnæði ADHD samtakanna. Kennsla fer fram í tvær vikur frá 12. júní til 21. júní, á mánudögum og miðvikudögum frá kl.10:00-12:30. Létt hressing í boði.

Áhersla verður lögð á að læra nýja hluti, hreyfingu, sköpun, teymisvinnu og fjör! 

Dagssetning Dagur Tími
12. júní Mánudagur Kl. 10:00 - 12.30
14. júní Miðvikudagur Kl. 10:00 - 12.30
19. júní Mánudagur Kl. 10:00 - 12.30
21. júní Miðvikudagur Kl. 10:00 - 12.30

 

Félagsmenn í ADHD samtökunum fá afslátt af þátttökugjaldinu, en hægt er að ganga í samtökin hér: https://www.adhd.is/is/styrkja/gerast-felagsmadur-adhd

Einnig er hægt að hafa samband við ADHD samtökin, 581 1110 eða adhd@adhd.is

 

Námskeiðsverð  
Félagsfólk  Kr. 29.000
Aðrir  Kr. 34.000

 

SKRÁNING HÉR