ADHD og sumarfí - Fræðslufundur

Miðvikudaginn 1. júní næst komandi kl. 19:30 verður fjallað um ADHD og sumarfrí.

Sumarfríin eru framundan, dagskrá skólanna að tæmast og við tekur sól sumar og taumlaus gleði... eða hvað? Þó sumarfríin séu og eigi að vera tími fjölskyldusamveru og fjölbreyttra skemmtilegra viðburða, fylgja sumrinu einnig nýjar og fjölbreyttar áskoranir, þar sem rútínan riðlast og við tekur óvissa. Hjá börnum með ADHD og fullorðnum, getur þessi tími valdið mikilli streitu og vanlíðan ef ekki tekst vel til. Á fundinum mun Dr. Drífa Björk Guðmundsóttir, sálfræðingur fara yfir helstu áskoranir þessa mikilvæga tíma fjölskyldunnar, benda á hagnýt ráð til lausnar og leiða umræður.

Fræðslufundirnir eru opnir öllum og er á fjórðu hæð á Háaleitisbraut 13.