Aðstandendanámskeið 6-12 barna með ADHD 2024

Fræðslunámskeið fyrir aðstandendur barna með ADHD frá 6-12 ára aldri verður haldið 27. apríl 2024 í húsakynnum ADHD samtakanna, Háaleitisbraut 13, 4. hæð og í gegnum fjarfundarbúnað.

Námskeið er haldið einn laugardag i senn frá kl. 09:00-16:00. Ath! Boðið er uppá veitingar í hádeginu, ásamt kaffi og með því.

Á námskeiðinu er lögð áhersla á að þátttakendur öðlist góðan skilning á ADHD röskunni og fái einföld og hagnýt ráð við uppeldi barna með ADHD. Námskeiðið hentar því vel fyrir alla nána aðstandendur barna með ADHD, mömmur, pabba, fósturforeldra, stjúpforeldra, ömmur, afa og aðra nákomna. Það er mikill kostur ef allir nánustu aðstandendur geta tekið þátt.

Boðið verður upp á fjarfundarbúnað fyrir þá sem ekki geta mætt á staðinn.

Skipulag og dagskrá 27. apríl 2024. ATHUGIÐ að dagsskrárliðir gætu breyst!!

Kl. 09:00 - 10:00 Hvað er ADHD? Sólveig Ásgrímsdóttir sálfræðingur

Kl. 10:00 - 11:00 ADHD og lyfjamál Hrefna Garðarsdóttir geðlæknir og Vilhjálmur Hjálmarsson

Kl. 11:00 - 11:15 Hlé

Kl. 11:15 - 12:15 ADHD og nám Haukur Örvar Pálmason sálfræðingur

Kl. 12:15 - 13:00 Hádegishlé

Kl. 13.00 - 14.00 ADHD og kvíði Baldvin Logi Einarsson sálfræðingur

Kl. 14:00 - 15:00 ADHD og fjölskyldan Jóna Kristín Gunnarsdóttir, grunnskólakennari og hegðunarráðgjafi

Kl. 15:00 - 15:15 Hlé

KL. 15:15 - 16:00 Kynning á Sjónarhól - Sigurður Hólm fjölskylduráðgjafi

Félagsmenn í ADHD samtökunum fá verulegan afslátt af þátttökugjaldinu, en hægt er að https://www.adhd.is/is/styrkja/gerast-felagsmadur-adhd