Reykjavík Fræðslufundur ADHD og sumarfrí Vor 2024

Reykjavík, fræðslufundur, ADHD og sumarfrí

Sumarfríin eru framundan, dagskrá skólanna að tæmast og við tekur sól, sumar og taumlaus gleði....eða hvað? Þrátt fyrir að sumarfríin séu og eigi að vera tími fjölskyldusamveru og skemmtilegra viðburða fylgja sumrinu einnig nýjar og fjölbreyttar áskoranir. Rútínan riðlast og óvissa getur tekið völdin. Hjá börnum með ADHD og fullorðnum getur þessi tími valdið mikilli streitu og vanlíðan ef ekki tekst vel til. Á fundinum mun Dr. Drífa Björk Guðmundsdóttir, sálfræðingur fara yfir helstu áskoranir þessa mikilvæga tíma fjölskyldunnar, benda á hagnýt ráð til lausnar og leiða umræður.

Fundurinn verður haldinn í Háaleitisbraut 13, 4. hæð, þann 7. maí kl. 20:00. 

Hér er tengill til að skrá sig í samtökin: https://www.adhd.is/is/styrkja/gerast-felagsmadur-adhd

 

Allir velkomnir!