Sálfræðiþjónusta

Sjúkratryggingar íslands veita niðurgreiðslu á sálfræðiþjónustu að undangengnum eftirfarandi skilyrðum. Nánari upplýsingar að finna á sjukra.is.

 

Til að fá niðurgreiðslu vegna kostnaðar verður að liggja fyrir tilvísun þverfaglegs greiningarteymis til sálfræðings. Viðkomandi sálfræðingur verður að starfa samkvæmt samningi Sjúkratrygginga Íslands og Sálfræðingafélags Íslands.

Greiningarteymi sem gert hafa samkomulag við velferðarráðuneytið um tilvísanir:

  • Barna- og unglingageðdeild Landspítala (BUGL)
  • Þroska og hegðunarstöð
  • Heilbrigðisstofnun Suðurlands
  • Greiningar-/ráðgjafastöðvar ríkisins (GR)
  • Barnaspítali Hringsins
  • Þverfaglegt teymi Sjúkrahússins á Akureyri (SAK)
  • Barnageðlæknar

Fjöldi meðferðatíma í tilvísun getur verið að hámarki tíu tímar og gildir tilvísunin í sex mánuði frá útgáfudegi. Hafi tilvísun ekki verið gefin út eða er eldri en sex mánaða taka Sjúkratryggingar Íslands ekki þátt í kostnaði við þjónustuna.

Í hnotskurn

  • Greiningarteymi gefur út tilvísun sem er að hámarki tíu tímar og gildir í 6 mánuði frá útgáfudegi.
  • Sjúkratryggingar Íslands greiða fyrir sálfræðiþjónustu við börn samkvæmt greiðsluþátttökukerfinu ef tilvísun er fyrir hendi til sálfræðings sem starfar samkvæmt rammasamningi milli Sjúkratrygginga og sálfræðinga.. Sjá frekari upplýsingar hér: 

    http://www.sjukra.is/heilbrigdisthjonusta/greidsluthatttaka/

      

Þeir sálfræðingar sem óska eftir að gerast aðilar að rammasamningi sálfræðinga og SÍ geta fyllt út umsóknareyðublað og sent viðeigandi gögn til SÍ.  Umsóknina má finna undir samningum um heilbrigðisþjónustu

Þeir sálfræðingar sem starfa samkvæmt samningi eru:

 

Berglind Brynjólfsdóttir
Sálstofan, Hlíðasmár 17, 201 Kópavogi

 

Drífa Jenný Helgadóttir
Heilsuborg, Bídlshöfða 9, 110 Reykjavík

 

Elísa Guðnadóttir
Sálstofan, Hlíðasmára 17, 201 Kópavogi
 
Eyrún Kristína Gunnarsdóttir
Metís-sálfræðiþjónusta, Mýrarvegi Kaupangi, 600 Akureyri

 

Gunnar Páll Leifsson
Sálfræðiþjónusta GP, Suðurlandsbraut 32, 108 Reykjavík

 

Hrund Þrándardóttir
Sálstofan, Hlíðasmára 17, 201 Kópavogi

 

Kolbrún Baldursdóttir
Ármúla 5 2h, 108 Reykjavík

 

Linda Björk Oddsdóttir
Sálstofan, Hlíðasmára 17, 201 Kópavogi

 

Magnús F. Ólafsson
Heilsuborg, Bíldshöfða 9, 110 Reykjavík
  
Margrét Birna Þórarinsdóttir
Sálstofan, Hlíðasmára 17, 201 Kópavogi
 
Sigríður Karen J. Bárudóttir
Sálfræðisetrið ehf, Suðurlandsbraut 46, 108 Reykjavík