Að vaxa í leik - hlutverk foreldra í þroska barna
Hlutverk foreldra í þroska barna er stórt og því mikilvægt að staldra við og skilja:

Hvers vegna leikur er lykill að námi og þroska

Hvernig börn læra og þroskast í gegnum dagleg samskipti

Hvert hlutverk foreldra er í að styðja við sjálfstæði, tilfinningar og félagsfærni

Hvaða einföldu leiðir geta nýst strax heima
Með allt á fleygiferð er mikilvægt að skilja hvernig við styðjum sem best við þroska barna í gegnum leik, tengsl og daglegt líf.
Markmið fræðslunnar er að styrkja foreldra í einu mikilvægasta hlutverki lífsins, að styðja barnið sitt með hlýju, nærveru og skilningi.
Fyrirlesari er Katrín Ruth Þorgeirsdóttir
Ráðgjafarþroskaþjálfi hjá menntasviði Reykjanesbæjar
Katrín hefur víðtæka reynslu af starfi með börnum og fjölskyldum, meðal annars í leik- og grunnskólum, félagsstarfi og ráðgjöf.
Hún er einnig skyndihjálparkennari og leiðbeinandi í sálrænni skyndihjálp og öryggi og björgun.