ADHD og meðvirkni
Fræðslufundur í streymi þar sem farið verður farið yfir grunninn í meðvirkni út frá hugmyndafræði Pia Mellody: hvað meðvirkni er, hvaðan hún kemur og hvernig hún birtist í daglegu lífi.
Sérstök áhersla verður lögð á meðvirkni sem varnarhátt sem einstaklingur þróar með sér til að aðlagast aðstæðum sínum. Fjallað verður um hvernig reynsla af endurtekinni leiðréttingu, skömm eða því að þurfa sífellt að passa sig getur haft áhrif á sjálfsvirði, mörk og tengsl við sjálfan sig og aðra, reynslu sem margir með ADHD tengja við.
Fyrirlesari er Alda Friðný Áskelsdóttir sérfræðingur í áfalla- og meðvirknifræði Piu Mellody, hún er einnig með BA í Sálfræði og
Masters diploma í jákvæðri sálfræði og Núvitundarkennari.
Fræðslufundurinn er í beinu streymi fyrir félagsfólk ADHD samtakanna og verður upptaka aðgengileg í viku á eftir.
Facebook viðburður
Vertu með okkur: Ganga í ADHD samtökin | ADHD samtökin