Ert þú með ADHD eða áttu maka með ADHD?
-Hvaða áskoranir eru í ADHD parasambandinu?
-Hvernig er hægt að takast á við þær áskoranir til að eiga farsælt parasamband?
Anna Elísa Gunnarsdóttir félagsráðgjafi fer yfir hvernig einkenni ADHD geta haft áhrif á pör, sérstaklega þar sem annar aðilinn er með ADHD en hinn ekki.
Helstu áskoranir í samskiptum og verkaskiptingu heimilisins og hvernig hægt er að takast á við þær.
Fræðslufundurinn verður í streymi og er eingöngu aðgengilegur skuldlausu félagsfólki ADHD samtakanna á Facebook síðunni ADHD í beinni.
Hægt er að skrá sig í samtökin hér: Skrá í samtökin
Facebook viðburður