Margir með ADHD upplifa aukna streitu, innri óróleika, erfiðleika með tilfinningastjórnun og áskoranir við að hlusta á boð líkamans.
En hvernig tengjast líkami, taugakerfi og vellíðan?
Á þessum fræðslufundi fjallar Sigrún Haraldsdóttir um mikilvægi líkamsvitundar og innri skynjunar og hvernig Vagus-taugin gegnir lykilhlutverki í samskiptum líkama og huga.
Vagus-taugin/Flökkutaugin er oft kölluð “drottning” parasympatíska kerfisins – bremsa líkamans.
Hún er oft séð sem “umferðarstjórnandi”, þar sem hún er mikilvæg samskiptabraut milli líkamans og heilans og vinnur við að stýra öndun, hjartslætti, vöðvum, meltingu, koki, raddböndum og hæfileika okkar til að upplifa, vinna úr og fá botn í reynslu okkar.
Fræðslufundurinn hentar fólki með ADHD, aðstandendum og fagfólki sem vill dýpka skilning sinn á tengslum taugakerfis, líkamsvitundar og geðrænnar vellíðanar.