Saman í gegnum ADHD - foreldrahittingur
3. nóvember kl. 20:00-21:00
Mannréttindahúsið, Sigtún 42 105 Reykjavík og streymi
Saman í gegnum ADHD - foreldrahittingur
ADHD samtökin í samvinnu við Sjónarhól ráðgjafarmiðstöð halda áfram með foreldrahóp fyrir foreldra, forráðafólk og aðstandendur barna með ADHD.
Anna Elísa Gunnarsdóttir félagsráðgjafi stýrir hópnum.
Þarna er vettvangur þar sem foreldrar geta skipst á ráðum, fengið svör við spurningum og vangaveltum, deilt reynslu sinni og sigrum
ásamt því að finna tengingu við aðra foreldra í svipuðum sporum.
Hópurinn hittist einu sinni í mánuði á þriðjudögum klukkan 20 í Mannréttindahúsinu, Sigtún 42 105 Reykjavík
Öll velkomin