Úlfatíminn!
Nú þegar sumarfríin eru búin og hversdagsleikinn tekur við eiga margir foreldrar barna með ADHD
í erfiðleikum með það sem við köllum Úlfatímann þ.e. tíminn eftir skóla fram að háttatíma.
Skapsveiflur, krefjandi hegðun og þreyta ýta undir óæskilegar uppákomur.
Þetta reynir á þolinmæðina og getur verið gríðarlega krefjandi tími á heimilinu.
Katrín Ruth Þorgeirsdóttir ráðgjafaþroskaþjálfi og hegðunarráðgjafi fer yfir leiðir og úrræði til þess að takast á við þennan tíma.
Fræðslufundurinn verður í streymi og er eingöngu aðgengilegur skuldlausu félagsfólki ADHD samtakanna á Facebook síðunni ADHD í beinni.