ADHD og nám - fræðslufundur á Facebook.

ADHD og nám á tímum kórónuveirunnar - fræðslufundur á Facebook.
ADHD og nám á tímum kórónuveirunnar - fræðslufundur á Facebook.

Á meðan samkomubann stjórnvalda er í gildi, munu ADHD samtökin standa fyrir vikulegum opnum fræðslufundum um ýmis málefni tengd ADHD. Sá fyrsti verður miðvikudaginn 1. apríl kl. 19:30 um ADHD og nám  á tímum kórónuveirunnar. Fræðslufundunum verður streymt beint á Facebook síður samtakanna - ADHD samtökin, ADHD Eyjar og ADHD Norðurland.

Fræðslufundirnir sem þegar hafa verið ákveðnir eru þessir - sjá nánar á Facebook viðburði fræðslufundanna:

1. apríl kl. 19:30 - Nám og ADHD á tímum kórónuveirunnar.
Jóna Kristín Gunnarsdóttir, kennari og stjórnarkona í ADHD samtökunum fer yfir helstu áskoranir sem nemendur með ADHD, kennarar og forráðamenn, standa nú frammi fyrir. Samkomubann og raskanir á skólahaldi geta komið sérstaklega ílla við börn með ADHD og mikilvægt er að grípa þegar til ráðstafana til að styðja þau í gegnum tímabilið. Ýmislegt er til ráða og mun Jóna Kristín miðla af reynslu sinni og svara spurningum eftir megni. Þeir sem vilja leggja spurningar fyrir Jónu Kristínu, nafnlaust eða undir nafni, geta sent henni spurningar hér.

15. april kl. 19:30 - Unglingar og ADHD.
Umsjón: Sólveig Ásgrímsdóttir, sálfræðingur, stjórnarkona í ADHD samtökunum og höfundur verðlaunabókarinnar Ferðalag í flughálku - unglingar og ADHD.


22. apríl kl. 19:30 - ADHD, svefn og streita.
Umsjón: Sigrún Jónsdóttir, ADHD markþjálfi og stjórnarkona í ADHD samtökunum.


29. apríl kl. 19:30 - Lyf og ADHD.
Umsjón: Vilhjálmur Hjálmarsson, varaformaður ADHD samtakanna og Elín Hrefna Garðarsdóttir, geðlæknir og stjórnarkona í ADHD samtökunum.

 

6. maí kl. 19:30 - Taktu stjórnina - ADHD markþjálfun.
Umsjón: Sigrún Jónsdóttir, ADHD markþjálfi og stjórnarkona í ADHD samtökunum.


13. maí kl. 19:30 - Náin sambönd og ADHD.
Umsjón: Elín Hinriksdótir, formaður ADHD samtakanna.


Fræðslufundirnir verða opnir öllum opnir en þeir sem vilja ganga í ADHD samtökin og styrkja þannig starfsemina geta gert það hér:
https://www.adhd.is/is/styrkja/gerast-felagsmadur-beintengt

Þá vekjum við athygli á vefverslun samtakanna, en þar er m.a. hægt að fá margskonar fikt-, leik- og þroskandi vörur og fjölda bóka sem nýst geta vel við nám og daglegt líf með ADHD. Félagsmenn ADHD samtakanna njóta sérkjara á ýmsum vöruflokkum. Vefverslun ADHD samtakanna.