ADHD og ég - Stelpur 10-12 ára

Dagssettning Tími Staðsetning
2. mars 2024 kl. 13:00 - 15:30 Háaleitisbraut 13, 108 Reykjavík 4. hæð.
3. mars 2024 kl. 13:00 - 15:30 Háaleitisbraut 13, 108 Reykjavík 4. hæð.

ADHD og ég, fræðslu- og sjálfsstyrkingarnámskeið fyrir stelpur á aldrinum 10-12 ára, helgina 2. og 3. mars, laugardag og sunnudag frá kl. 13:00-15:30.

Á námskeiðinu er farið yfir birtingarmyndir ADHD og þátttakendur læra leiðir til að kortleggja hvernig þær birtast hjá þeim. Með auknum skilningi eykst getan til að finna hvaða styrkleikar þeir hafa og hvaða þætti þarf að styrkja, t.d. félagsfærni, tilfinningastjórnun og jákvæðari sjálfsmynd.

Markmið námskeiðsins er að þátttakendur;

- öðlist meiri skilning á ADHD röskuninni og hvernig hægt er að yfirstíga hindranir sem hún veldur t.d. með aukinni hreyfingu, rútínu, slökun og matarræði
- efli færni í samskiptum og geti tileinkað sér að stoppa og hugsa áður en þeir bregðist við
- fái fleiri verkfæri sem nýtast í samskiptum og stuðla að bættri liðan
- skilji að allir geri mistök og hvernig nýta megi þau til að læra af
- þekki betur tilfinningar sínar og kynnist aðferðum til að efla tilfinningastjórnun

ATH! Námskeiðið er helgarnámskeið og er 2.5 klst fyrri daginn og 2.5 klst. seinni daginn, samtals 5 klst. alls . Hvorum degi er skipt upp í minni verkefni og umræður með reglulegu uppbroti og heilahvíld.

Námskeiðið er haldið í húsakynnum ADHD samtakanna, Háaleitisbraut 13, 108 Reykjavík 4. hæð.

Félagsmenn í ADHD samtökunum fá afslátt af þátttökugjaldinu, en hægt er að https://www.adhd.is/is/styrkja/gerast-felagsmadur-adhd

Einnig er hægt að hafa samband við ADHD samtökin, 581 1110 eða adhd@adhd.is