Aðstandendanámskeið

Dagsetning Tími Staðsetning
10. október kl. 09:00 - 16:00                                      Laugardagur Sigtún 42 og í lokuðu streymi.

Fræðslunámskeið fyrir aðstandendur barna um ADHD verður haldið í Mannréttindahúsinu Sigtún 42, 105 Reykjavík og í gegnum fjarfundarbúnað.

Námskeið er haldið einn laugardag frá kl. 09:00-16:00. Ath! Boðið er uppá veitingar í hádeginu, ásamt kaffi og með því.

Á námskeiðinu er lögð áhersla á að þátttakendur öðlist góðan skilning á ADHD röskunni og fái einföld og hagnýt ráð við uppeldi barna með ADHD. Námskeiðið hentar því vel fyrir alla nána aðstandendur barna með ADHD, mömmur, pabba, fósturforeldra, stjúpforeldra, ömmur, afa og aðra nákomna. Það er mikill kostur ef allir nánustu aðstandendur geta tekið þátt.

Upptökur frá námskeiðinu eru aðgengilegar á lokuðu svæði fyrir þátttakendur í 2 mánuði eftir námskeiðið.

Dagskrá:

9:00 – 10:00 Hvað er ADHD

Helga Jónsdóttir sálfræðingur

10:00 – 11:00 ADHD og nám

Haukur Örvar Pálmason sálfræðingur

11:00 – 11:15 Hlé

11:15 – 12.15 Sjónrænar lausnir, jákvæð hvatning og ró

Berglind Ýr Karlsdóttir stofnandi Kiddo og sérkennari

12:15 – 13:00 Hádegishlé

13:00 – 14:00 Samvera og forvarnir

Sigrún Birna Sigurðardóttir, sálfræðingur

14:00 – 14:15 Hlé

14:15 – 15:45 Hagnýtar leiðir og ráð

Jóna Kristín Gunnarsdóttir, verkefnistj. fræðslumála

15:45 – 16:00 Samantekt og umræður

 

Allir þátttakendur fá frían mánuð í áskrift af Kiddo. 

Kiddo er fjölskylduapp sem hjálpar börnum að fylgja rútínum, klára verkefni og vera stolt af framförum sínum ?
KIDDO er app fyrir spjaldtölvur, Ipad og Android ?

Á námskeiðinu verður farið yfir hvernig appið virkar og boðið upp á aðstoð við að setja það upp. 

 

Félagsfólk í ADHD samtökunum fær verulegan afslátt af þátttökugjaldinu, en hægt er að skrá sig hér :  https://www.adhd.is/is/styrkja/gerast-felagsmadur-adhd