Áfram stelpur

Dags Tími Staðsetning
12. september 2024 17:00 - 20:00 Lífsgæðasetrið í St. Jósefsspítala
19. september 2024 17:00 - 20:00 Lífsgæðasetrið í St. Jósefsspítala
26. september 2024 17:00 - 20:00 Lífsgæðasetrið í St. Jósefsspítala

Fræðslu- og sjálfsstyrkingarnámskeið ADHD samtakanna – Áfram stelpur!

Námskeiðið stendur í 9 klukkustundir - þrjú skipti, 3 klukkustundir í senn fimmtudagana 12. - 19. og 26. september kl:17.00-20:00

Markmið námskeiðs:

Námskeiðinu er ætlað að veita fræðslu um ADHD einkenni kvenna, algengar fylgiraskanir þeirra og ólíkar birtingarmyndir röskunarinnar. Áhersla er lögð á þau hugrænu ferli sem liggja að baki algengum áskorunum sem einstaklingar með ADHD mæta í daglegu lífi, hvort sem er í námi, starfi, heimilislífi, félagslegum samskiptum eða uppeldi. Markmið námskeiðsins er að styrkja konur með ADHD í markmiðasetningu, áætlanagerð og skipulagi með það fyrir augum að draga úr streitu og vanmáttarkennd. Námskeiðinu er ætlað að fræða konur um ýmis verkfæri sem nýst geta í þessum tilgangi og veita þjálfun í notkun þeirra í gegnum samtöl og verkefnavinnu.

Námskeiðið verður í húsnæði Lífsgæðasetursins í St. Jósefsspítala. Leiðbeinandi er Sigrún Jónsdóttir, ADHD og einhverfu markþjálfi.

Félagsmenn í ADHD samtökunum fá afslátt af þátttökugjaldinu, en hægt er að ganga í samtökin hér.

Einnig er hægt að hafa samband við ADHD samtökin, 581 1110 eða adhd@adhd.is