Grunnskólinn og ADHD

Dagsetning Tími Staðsetning
4. mars  miðvikudagur                        17:00 - 21:00 Zoom

Vefnámskeiðið Grunnskólinn og ADHD.

Hvernig getum við skapað skipulagt, styðjandi og árangursríkt námsumhverfi fyrir nemendur með ADHD?

Á þessu námskeiði fá þátttakendur hagnýtar og gagnreyndar aðferðir sem nýtast strax í daglegu skólastarfi.

Lögð er áhersla á birtingamyndir ADHD í skólastofunni, skipulag kennslu, árangursríkar kennsluaðferðir og notkun verkfæra sem styðja við athygli og virkni nemenda.

Einnig er fjallað um leiðir til að draga úr krefjandi hegðun með uppbyggilegri nálgun sem byggir á styrkleikum hvers nemanda.

Eftir námskeiðið munt þú meðal annars:

  • hafa aukinn skilning á ADHD í skólaumhverfinu
  • búa yfir fleiri hagnýtum verkfærum til kennslu og stuðnings
  • hafa betri yfirsýn yfir leiðir til að draga úr krefjandi hegðun
  • vera betur í stakk búin/n/ð til að efla samstarf heimilis og skóla

Það sem gagnast nemendum með ADHD gagnast í flestum tilfellum öllum nemendum og stuðlar að betra námsumhverfi fyrir allan bekkinn.

Námskeiðið hentar fyrir kennara, leiðbeinendur, stuðningsfulltrúa og annað fagfólk sem kemur að kennslu barna með ADHD.

 Skráðu þig og styrktu kennsluna með verkfærum sem virka!

Námskeiðið er eitt skipti frá  kl. 17:00 - 21:00

Fyrirlesari Jóna Kristín Gunnarsdóttir grunnskólakennari og verkefnisstjóri fræðslumála hjá ADHD samtökunum.

Hlekkur að ganga í samtökin: https://www.adhd.is/is/styrkja/gerast-felagsmadur-adhd

Einnig er hægt að hafa samband við ADHD samtökin, 581 1110 eða adhd@adhd.is