Taktu stjórnina!

Dags Tími Staðsetning
3. sept 2024 kl. 17:00 - 19:30 Háaleitisbraut 13, 4. hæð.
10. sept 2024 kl. 17:00 - 19:30 Háaleitisbraut 13, 4. hæð.
17. sept 2024 kl. 17:00 - 19:30 Háaleitisbraut 13, 4. hæð.
24. sept 2024 kl. 17:00 - 19:30 Háaleitisbraut 13, 4. hæð.

Námskeiðið Taktu stjórnina! sem verður haldið á miðvikudögum 3., 10., 17. og 24. september Námskeiðið stendur í 10 klukkustundir - fjögur skipti, 2 og 1/2 klukkukstund í senn frá kl. 17:00 - 19:30 alla dagana.

  • Fjöldi þátttakenda er takmarkaður - fyrstur kemur, fyrstur fær!

Á námskeiðinu verður fjallað um eftirfarandi þætti:

  • Skilningur á ADHD og ólík einkenni
  • Algengir fylgikvillar
  • Að sættast við greininguna – styrkleikar og vandkvæði
  • Markmiðasetning
  • Félagsleg samskipti almennt
  • Vinna og nám
  • Fjármálastjórn
  • Heimilið
  • Foreldrahlutverkið og samskipti við maka
  • Heilbrigt líferni

Markmið námskeiðsins:

  • Markmiðið er að veita fullorðnum með ADHD helstu upplýsingar um einkenni ADHD og ólíkar birtingarmyndir röskunarinnar. Styrkja einstaklingana í að skipuleggja líf sitt, ná utan um það sem kannski áður hefur farið forgörðum, vinna á streitu og kvíða með upplýsingum, samtölum og æfingum. Veita þátttakendum ákveðin tæki til að líða betur með ADHD í sínu lífi. Setja sér skynsamleg markmið og raunhæfar kröfur. Afraksturinn er betri einstaklingur, huganlega betra og ánægðara foreldri, maki, starfsmaður og borgari.

Námskeiðið verður að haldið í húsnæði ADHD samtakanna að Háaleitisbraut 13, 4. hæð. Leiðbeinendur verða Dr. Drífa Björk Guðmundsdóttir, sálfræðingur og Sigrún Jónsdóttir, ADHD markþjálfi og þroskaþjálfi.

Námskeiðsverð:

39.000 kr. fyrir félagsmenn ADHD samtakanna
44.000 kr fyrir aðra

Innifalið í námskeiðsgjaldi er hressing og bók Dr. Ara Tuckman, "Leyndardómar heilans - Láttu verkin tala" sem kostar 5.900 kr. ein og sér.

Félagsmenn í ADHD samtökunum fá afslátt af þátttökugjaldinu, en hægt er að https://www.adhd.is/is/styrkja/gerast-felagsmadur-adhd

Einnig er hægt að hafa samband við ADHD samtökin, 581 1110 eða adhd@adhd.is