Taktu stjórnina!

Dags Tími Staðsetning
15.  apríl Miðvikudagur                     kl. 18:30 - 21:30 Óðinsgata 7, 101 Reykjavík
22. apríl Miðvikudagur                     kl. 18:30 - 21:30 Óðinsgata 7, 101 Reykjavík
29. april Miðvikudagur                     kl. 18:30 - 21:30 Óðinsgata 7, 101 Reykjavík
     

 Námskeiðið stendur í 9 klukkustundir - þrjú skipti, 3 klukkustundir í senn frá kl. 18:00 - 21:00 alla dagana.

  • Fjöldi þátttakenda er takmarkaður - fyrstur kemur, fyrstur fær!

Þetta námskeið er ætlað fullorðnum með ADHD sem vilja auka skilning á greiningunni og fá hagnýt verkfæri til að skipuleggja daglegt líf, draga úr streitu og setja sér raunhæf markmið. Unnið er með upplýsingar, samtöl og einfaldar æfingar sem nýtast strax.

Á námskeiðinu verður fjallað um:

  • skilning á ADHD og ólík einkenni

  • algenga fylgikvilla

  • að sættast við greininguna – styrkleika og vandkvæði

  • markmiðasetningu og raunhæfar kröfur

  • félagsleg samskipti

  • vinnu og nám

  • fjármálastjórn

  • heimilið og skipulag daglegs lífs

  • foreldrahlutverkið og samskipti við maka

  • heilbrigt líferni

Markmið námskeiðsins

Markmiðið er að veita þátttakendum helstu upplýsingar um einkenni ADHD og ólíkar birtingarmyndir röskunarinnar, auk þess að styrkja þá í að ná betri yfirsýn og festu í daglegu lífi. Námskeiðið styður þátttakendur í að vinna með streitu og kvíða með fræðslu, samtölum og æfingum og veitir hagnýt verkfæri sem geta hjálpað til við að líða betur með ADHD í eigin lífi. Áhersla er á að setja sér skynsamleg markmið og raunhæfar kröfur. Afraksturinn getur verið meiri sjálfsskilningur, betri líðan og aukin færni í hlutverkum daglegs lífs – heima, í námi eða vinnu og í samskiptum.

Námskeiðið verður að haldið í húsakynnum Norræna félagsins Óðinsgötu 7, 101 Reykjavík. Leiðbeinandi er Dr. Drífa Björk Guðmundsdóttir, sálfræðingur 

Námskeiðsverð:

42.000 kr. fyrir félagsfólk ADHD samtakanna
47.000 kr fyrir aðra

Innifalið í námskeiðisgjaldi er hressing 

Félagsfólk í ADHD samtökunum fær afslátt af þátttökugjaldinu, en hægt er að https://www.adhd.is/is/styrkja/gerast-felagsmadur-adhd

Einnig er hægt að hafa samband við ADHD samtökin, 581 1110 eða adhd@adhd.is