Til baka
Alexander Daníel Hermann Dawidsson: Bannað að eyðileggja
Alexander Daníel Hermann Dawidsson: Bannað að eyðileggja

Alexander Daníel Hermann Dawidsson: Bannað að eyðileggja

Vörunr. 1030
Verðmeð VSK
4.750 kr.

Lýsing

Alexander Daníel Hermann Dawidsson er með ADHD en það er allt í lagi – nema þegar lífið tekur upp á því að fara á hvolf. Bannað að eyðileggja er spennandi saga um Alexander og Sóleyju bekkjarsystur hans, litríku fjölskyldurnar þeirra, mömmuna sem er farin og kennarann sem ætti ekki að fá að vinna með börnum. Áhrifamikil bók eftir Gunnar Helgason, einn ástsælasta barnabókahöfund landsins.

Gunnar Helgason er fæddur 24. nóvember 1965. Hann er leikari, leikstjóri, dagskrárgerðarmaður fyrir sjónvarp og rithöfundur. Fyrsta bók hans, Goggi og Grjóni, kom út árið 1992 og síðan hefur Gunnar skrifað fjölmargar barnabækur, þar á meðal geysivinsælar bækur um fótboltastrákinn Jón Jónsson. Hann fékk Vorvindaverðlaun IBBY árið 2013 fyrir fótboltabækur sínar og sama ár hlaut hann Bókaverðlaun barnanna fyrir Aukaspyrna á Akureyri (2012).

Gunnar hlaut Íslensku bókmenntaverðlaunin 2015 í flokki barna- og ungmennabóka fyrir bók sína Mamma klikk.

Af því tilefni að bókin var tilnefnd til Norrænu barna- og unglingabókaverðlaunanna 2022 er 20% afsláttur fyrir félagsmenn

Verð fyrir félagsmenn: 3.800 kr.
Félagsmenn stimpla inn AFSLÁTTARKÓÐANN í lok greiðsluferils.
Ef félagsmaður er ekki með afsláttarkóðann þá getur hann sent póst á adhd@adhd.is  og fengið nýjan afsláttarkóða.