Til baka
Lærðu að hægja á  og fylgjast með
Lærðu að hægja á og fylgjast með

Lærðu að hægja á og fylgjast með

Vörunr. 1007
Verðmeð VSK
3.800 kr.

Lýsing

Þessi bók er sérstaklega ætluð börnum sem glíma við erfiðleika sem tengjast athyglisbresti og ofvirkni. Bókinni er ætlað að vera nokkurs konar
sjálfshjálpartæki fyrir börn á grunnskólaaldri og inniheldur aðgengilegar upplýsingar, góð ráð, leiðbeiningar og hvatningu sem gagnast við að takast á
við daglegt líf á árangursríkan hátt. Bókinni er skipt í fjóra meginkafla. Í fyrsta kafla svara börnin ýmsum spurningum um sjálf sig og venjur sínar og geta
þannig betur áttað sig á veikleikum sínum. Næsti kafli fjallar um það fólk sem getur hjálpað börnunum að leysa vandann, svo sem lækna, sálfræðinga,
námsráðgjafa og kennara. Þriðji kaflinn, sem jafnframt er stærsti hluti bókarinnar, veitir barninu fjölda hagnýtra ráða um það hvernig það getur sjálft hjálpað sér að lifa betra og ánægjulegra lífi. Loks sýnir lokakaflinn hvernig barnið getur tamið sér nýjar venjur með hjálp foreldra sinna. Alls staðar í bókinni eru tekin
hversdagsleg dæmi til útskýringar á efninu og er bókin því sérlega aðgengileg, bæði fyrir börn og fullorðna.

Höfundar: Kathleen G. Nadeau og Ellen B. Dixon
Íslensk Þýðing: Gyða Haraldsdóttir 
Útgefandi: Skrudda 2008