Lýsing
Gerum samning – einföld og áhrifarík leið til betri samskipta í fjölskyldunni
Viltu leysa ágreining og styrkja samskipti innan fjölskyldunnar – á einfaldan og jákvæðan hátt?
Gerum samning er hagnýt og aðgengileg bók fyrir foreldra og umönnunaraðila sem vilja hjálpa börnum sínum að ná tökum á daglegum áskorunum með markvissum hætti. Hvort sem barnið á erfitt með heimilisverk, undirbúning fyrir daginn, heimanám eða samskipti við systkini, geta samningar verið lykillinn að bættri hegðun og betri tengslum.
Í bókinni finnur þú:
-
Skýrar leiðbeiningar um hvernig á að búa til og innleiða samninga í aðeins fjórum einföldum skrefum.
-
Hagnýt ráð til að leysa algeng ágreiningsmál á borð við morgunrútínu, heimilisverk og átök milli systkina.
-
Dæmisögur sem sýna hvernig hægt er að kenna börnum samningatækni með leikandi hætti.
-
Aðferðir til að efla samskiptahæfni, sjálfstæði og ábyrgð barnanna.
Bókin byggir á styrkleikum barna og styður þau við að taka þátt í lausnaleit – í stað þess að vera einfaldlega hluti af vandamálinu.
Hvort sem þú ert að takast á við hegðunaráskoranir eða einfaldlega vilt bæta rútínu og daglegt líf fjölskyldunnar, er Gerum samning öflugt verkfæri sem gerir breytingar mögulegar – með samstarfi og virðingu að leiðarljósi.
15% afsláttur fyrir félagsfólk
Verð fyrir félagsmenn: 5.865 kr.