ADHD og tilfinningaþroski
Fræðslufundur í streymi fyrir félagsfólk með Steinunni Önnu Sigurjónsdóttur, sálfræðingi og stofnanda litlu Kvíðameðferðarstöðvarinnar
Margir fullorðnir með ADHD upplifa að erfiðleikar með tilfinningastjórn, skömm, nándarsambönd, hvatastjórn, sjálfsmynd og höfnunarnæmi hafi meiri áhrif á líf þeirra en athyglisbrestur eða ofvirkni.
Í fræðslunni verður fjallað um samspil ADHD, uppeldisaðstæðna, tengslamyndunar og taugakerfisins. Hvernig mótast sjálfsmynd barns sem elst upp við óstöðugleika, tilfinningalega vanstillingu, óreiðu, stjórn eða vanrækslu/einmanaleika? Hvað gerist þegar taugakerfi festist í fight, flight, freeze eða fawn viðbrögðum? Hvernig ævi bíður einstaklings sem heldur inn í fullorðinsár án þess að þekkja raunverulega hvíld, öryggi eða stöðugleika, hvorki í eigin taugakerfi, samskiptum né sjálfsmynd?
Farið verður yfir:
- tilfinningastjórn (emotional regulation)
- óörugga tengslamyndun og tengslasár
- varnarviðbrögðin fight/flight/freeze/fawn
- höfnunarnæmi og skömm
- yfirþyrmingu (overwhelm)
- hvernig áfallakeðjur og fjölskyldumynstur geta haldið áfram milli kynslóða
- hvernig hægt er að vinna í átt að meira öryggi og stöðugleika í taugakerfinu
Steinunn er klínískur sálfræðingur sem sérhæfði sig upphaflega í HAM en vinnur í dag með áfallamiðaðar nálganir, m.a. EMDR, partavinnu, tengslafræði og aðrar trauma-informed meðferðarnálganir. Hún talar bæði út frá faglegri reynslu og eigin lífsreynslu af því að reyna að skilja hvers vegna sum taugakerfi lifa í stöðugri viðbragðsstöðu.
Fyrirlesturinn er ætlaður fullorðnum með ADHD — og öllum þeim sem hafa upplifað að þau séu stöðugt að „reyna meira“ án þess að skilja af hverju lífið heldur áfram að vera svona erfitt.
Facebook viðburður
Hægt er að ganga í samtökin hér: Ganga í ADHD samtökin | ADHD samtökin