
Málþing ADHD samtakanna 30. október 2026
ADHD röskun geta fylgt ýmsar áskoranir sem birtast meðal annars í námi, starfi, nánum samböndum, foreldrahlutverki og félagslífi. Þessar aðstæður geta orðið flóknar og krefjandi. Ofangreind áhrif eru ekki alltaf sýnileg öðrum sem hefur meðal annars leitt til þess að langur tími hefur liðið áður en einstaklingar með ADHD mæti skilningi, fái stuðning eða greiningu.
Á málþinginu verður fjallað um þegar ADHD fylgir út frá uppeldi, atvinnu, fjármálum, samböndum, sjálfsmynd, jaðarsetningu. Lögð verður áhersla á að varpa ljósi á áskoranir sem geta fylgt ADHD og miðla reynslu, þekkingu og lausnum sem nýtast í raunverulegum aðstæðum.
Málþingið er ætlað fullorðnum með ADHD og aðstandendum sem og fagfólki sem starfar með eða þjónusta fólk með ADHD.
Dagskrá verður birt innan skamms