Áfram stelpur II - Lífsgæðasetrið St. Jósefsspítali Vor 2024

Fjöldi þátttakenda er takmarkaður - fyrstur kemur, fyrstur fær! 

Markmið námskeiðs:

Námskeiðinu er ætlað að veita fræðslu um ADHD einkenni kvenna, algengar fylgiraskanir þeirra og ólíkar birtingarmyndir röskunarinnar. Áhersla er lögð á þau hugrænu ferli sem liggja að baki algengum áskorunum sem einstaklingar með ADHD mæta í daglegu lífi, hvort sem er í námi, starfi, heimilislífi, félagslegum samskiptum eða uppeldi. Markmið námskeiðsins er að styrkja konur með ADHD í markmiðasetningu, áætlanagerð og skipulagi með það fyrir augum að draga úr streitu og vanmáttarkennd.  Námskeiðinu er ætlað að fræða konur um ýmis verkfæri sem nýst geta í þessum tilgangi og veita þjálfun í notkun þeirra í gegnum samtöl og verkefnavinnu.

Námskeiðið verður haldið í Lífsgæðasetrinu, ST. Jósefspítala, Suðurgata 41, 220 Hafnarfjörður. Leiðbeinandi er Sigrún Jónsdóttir ADHD og einhverfu markþjálfi.

Námskeiðið stendur í 9 klukkustundir - þrjú skipti, 3.0 klukkustundir í senn. Næsta námskeið verður haldið fimmtudagana 7. - 14. - og 21. mars kl.17:00-20.00 

 

Skipulag námskeiðs 2024:

Tími Vikudagur Dagsetning Tímasetning
1. tími Fimmtudagur 7. mars 17:00 - 20:00
2. tími Fimmtudagur 14. mars 17:00 - 20:00
3. tími Fimmtudagur 21. mars 17:00 - 20:00

 

Innifalið í námskeiðsgjaldi er hressing og bók Dr. Ara Tuckman, "Leyndardómar heilans - Láttu verkin tala" sem kostar 5.900 kr. ein og sér.

Félagsmenn í ADHD samtökunum fá afslátt af þátttökugjaldinu, en hægt er að ganga í samtökin hér.

Einnig er hægt að hafa samband við ADHD samtökin, 581 1110 eða adhd@adhd.is