Eyjar Fræðslufundur Úlfatíminn Vor 2024

Eyjar Fræðslufundur og spjall 14. mars kl.20.00.  Húsnæði Visku, Ægisgötu 2.

Úlfatíminn.

Hvaða foreldri kannast ekki við erfiðleikana og pirringinn sem skapast hjá börnum eftir að leikskóla lýkur og fram að háttatíma? Þetta er svokallaður úlfatími. Skapsveiflur, pirringur, hegðunarerfiðleikar og þessháttar eru ekki óalgengir hjá börnum á þessum tímapunkti og sérstaklega börnum með ADHD. Að versla í matinn, elda, borða, baða, bursta tennur, koma barninu í rúmið og svæfa er eilíf barátta. Þetta reynir á þolinmæðina og getur verið gríðarlega krefjandi tími. Hvernig er hægt að draga úr þessum árekstrum? 

Katrín Ruth Þorgeirsdóttir ráðgjafaþroskaþjálfi og hegðunarráðgjafi fer yfir nokkur góð ráð og aðferðir sem hægt er að nota til að létta heimilislífið og skapa jákvæðar samverustundir.

Hér er tengill til að skrá sig í samtökin: https://www.adhd.is/is/styrkja/gerast-felagsmadur-beintengt

Öll velkomin