Fræðslunámskeið fyrir aðstandendur barna með ADHD frá 13 - 18 ára aldri verður haldið 7. og 14. október 2023 í húsakynnum ADHD samtakanna, Háaleitisbraut 13, 4. hæð og í gegnum fjarfundarbúnað.
Námskeið er haldið tvo laugardaga i senn frá kl. 10:00-15:00.
Á námskeiðinu er lögð áhersla á að þátttakendur öðlist góðan skilning á ADHD röskunni og fái einföld og hagnýt ráð við uppeldi barna með ADHD. Námskeiðið hentar því vel fyrir alla nána aðstandendur barna með ADHD, mömmur, pabba, fósturforeldra, stjúpforeldra, ömmur, afa og aðra nákomna. Það er mikill kostur ef allir nánustu aðstandendur geta tekið þátt.
Boðið verður upp á fjarfundarbúnað fyrir þá sem ekki geta mætt á staðinn.
Skipulag og dagskrá:
Fyrri laugardagur 7. október
10:00 – 11:15 Hvað er ADHD?
11:15 - 11:30 Hlé
11:30 – 13:00 Félagsfærni barna með ADHD, hvað geta foreldrar gert?
13:00 – 13:30 Matarhlé
13:30 – 15:00 Kvíði og líðan barna með ADHD
Seinni laugardagur 14. október
10:00 – 11:15 Lyfjameðferð við ADHD
11:15 – 11:30 Hlé
11:30 - 13:00 ADHD og nám
13:00 – 13:30 Matarhlé
13:30 – 15:00 Samskipti innan fjölskyldna barna með ADHD
** ATH. uppröðun fyrirlestra og fyrirlesarar gætu breyst.
Hver fyrirlestur er í 75 mín. og reiknað með góðum tíma í fyrirspurnir og umræður.
Félagsmenn í ADHD samtökunum fá verulegan afslátt af þátttökugjaldinu, en hægt er að https://www.adhd.is/is/styrkja/gerast-felagsmadur-adhd