Fræðslufundur í sal og í streymi.
Það getur verið bæði krefjandi og einmanalegt að vera foreldri barns með ADHD.
Mörg upplifa að þau standi ein frammi fyrir áskorunum sem fáir skilja til fulls. En þið eruð ekki ein.
Á þessum fræðslufundi verður fjallað um mikilvægi jafningjastuðnings og jafningjafræðslu fyrir foreldra og aðstandendur barna með ADHD.
Hvernig getur það hjálpað að hitta aðra sem deila svipaðri reynslu? Hvers vegna skiptir máli að vita að aðrir hafa gengið í gegnum það sama og fundið leiðir sem virka?
Við ræðum stöðu ADHD-fjölskyldna á Íslandi í dag, förum yfir góðar leiðir til að vinna með foreldrastreitu og kynnum þau úrræði sem ADHD samtökin og Sjónarhóll bjóða upp á.
Markmið fundarins er að efla skilning, skapa tengsl og minna á að það er hægt að fá stuðning, ráðgjöf og verkfæri sem geta auðveldað daglegt líf fjölskyldunnar.

Umsjón með fundinum hafa Jóna Kristín Gunnarsdóttir, grunnskólakennari og verkefnastjóri hjá ADHD samtökunum, og Anna Elísa Gunnarsdóttir Zimsen, félagsráðgjafi og foreldri barna með ADHD
Frítt inn og öll velkomin á meðan húsrúm leyfir.
Facebook viðburður