32. Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka

Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka 2015 fer fram þann 22. ágúst og verður þetta í þrítugasta og annað sinn sem hlaupið er haldið. ADHD samtökin eru meðal fjölmargra félagsamtaka sem þátttakendur í Reykjavíkurmaraþoni geta hlaupið fyrir og um leið vakið athygli á málstaðnum. Áheitasöfnun fer fram á vefnum hlaupastyrkur.is

Einfalt að safna
Það er einfalt fyrir hlaupara að stofna aðgang á hlaupastyrkur.is og safna áheitum. Byrja þarf á því að skrá sig í hlaupið á marathon.is. Í skráningarferlinu er hægt að velja eitt af skráðum góðgerðafélögum en ADHD samtökin eru eitt þeirra, og stofnast þá viðkomandi sjálfkrafa á hlaupastyrkur.is að skráningu lokinni. Einnig geta skráðir hlauparar farið inn á hlaupastyrkur.is og stofnað aðgang í örfáum einföldum skrefum.

Hægt er að deila söfnunarsíðu hlaupara á samfélagsmiðlum og hvetja þannig vini og vandamenn til að heita á sig. Hver sem er getur farið inná hlaupastyrkur.is og heitið á skráða hlaupara.

Hægt er að greiða áheit með kreditkorti, millifærslu eða með því að senda sms skilaboð.

Um leið og við hvetjum sem flesta til að taka þátt í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka minnum við á áheitasöfnun því samfara.

Tímasetning hlaups í Lækjargötu 22. ágúst 2015

08:40 Maraþon, hálfmaraþon og boðhlaup
09:35 10 km hlaup
12:15 Skemmtiskokk 3 km
14:40 Tímatöku hætt

Tímamörk eru í maraþoni og boðhlaupi, sex klukkustundir. Þau sem koma í mark eftir lengri tíma en 6 klst fá ekki skráðan tíma.

Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka hefst og endar í Lækjargötu fyrir framan útibú Íslandsbanka.

Latabæjarhlaup í Hljómskálagarðinum

13:15 - Upphitun við rásmark
13:20 - Blá leið (6-8 ára) - ræst í 1,3 km hlaup
13:30 - Upphitun við rásmark
13:35 - Gul leið (5 ára og yngri) - ræst í 550 m hlaup
Ræst verður í fjórum hópum eftir röð í Bjarkargötu. Vinsamlega komið í röðina við suðurenda götunnar, næst Hringbraut.

Skemmtidagskrá verður á sviði í suðurenda Hljómskálagarðsins að hlaupi loknu.