33. Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka

Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka 2016 fer fram þann 20. ágúst og verður þetta í þrítugasta og þriðja sinn sem hlaupið er haldið. 146 góðgerðafélög taka þátt í áheitasöfnun hlaupsins. ADHD samtökin eru meðal fjölmargra félagsamtaka sem þátttakendur í Reykjavíkurmaraþoni geta hlaupið fyrir og um leið vakið athygli á málstaðnum. Áheitasöfnun fer fram á vefnum hlaupastyrkur.is

Fyrsta Reykjavíkurmaraþonið fór fram árið 1984 en þá tóku 214 hlauparar frá átta löndum þátt í hlaupinu. Í fyrra tóku rúmlega 15 þúsund manns þátt í hlaupinu.

Einfalt að safna
Það er einfalt fyrir hlaupara að stofna aðgang á hlaupastyrkur.is og safna áheitum. Byrja þarf á því að skrá sig í hlaupið á marathon.is. Í skráningarferlinu er hægt að velja eitt af skráðum góðgerðafélögum en ADHD samtökin eru eitt þeirra, og stofnast þá viðkomandi sjálfkrafa á hlaupastyrkur.is að skráningu lokinni. Einnig geta skráðir hlauparar farið inn á hlaupastyrkur.is og stofnað aðgang í örfáum einföldum skrefum.

Hér má sjá þá sem þegar hafa ákveðið að leggja ADHD samtökunum lið og því starfi sem samtökin sinna.

 

 

Hægt er að deila söfnunarsíðu hlaupara á samfélagsmiðlum og hvetja þannig vini og vandamenn til að heita á sig. Hver sem er getur farið inná hlaupastyrkur.is og heitið á skráða hlaupara.

Hægt er að greiða áheit með kreditkorti, millifærslu eða með því að senda sms skilaboð.

Um leið og við hvetjum sem flesta til að taka þátt í Reykjavíkurmaraþoni Íslandsbanka minnum við á áheitasöfnun því samfara.

Tímasetning hlaups í Lækjargötu 20. ágúst 2015

08:40 Maraþon, hálfmaraþon og boðhlaup
09:35 10 km hlaup
12:15 Skemmtiskokk 3 km
14:40 Tímatöku hætt

Tímamörk eru í maraþoni og boðhlaupi, sex klukkustundir. Þau sem koma í mark eftir lengri tíma en 6 klst fá ekki skráðan tíma.

Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka hefst og endar í Lækjargötu, fyrir framan Menntaskólann í Reykjavík.

Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka 2016 fer fram þann 20. ágúst og verður þetta í þrítugasta og þriðja sinn sem hlaupið er haldið.

Krakkahlaup

Krakkahlaupið er ætlað fyrir börn 6 ára og yngri. Hægt er að skrá börn allt upp í 10 ára en frekar er mælt með því að þau hlaupi í 3 km skemmtiskokkinu. Krakkahlaupið fer fram í Hljómskálagarðinum laugardaginn 20. ágúst 2016. Hlaupin verður um 550 m leið og boðið uppá dagskrá að því loknu. Dagskrá er í vinnslu en gera má ráð fyrir að hún verði milli kl.13 og 15.

 

Vefur Reykjavíkurmaraþons