Á að banna allt sem er ekki blýantur?

Hvernig væri að nota hluti sem vekja áhuga barnanna í kennslu í stað þess að banna allt sem er ekki blýantur? Þannig spyr ingvi Hrannar Ómarsson, kennsluráðgjafi í upplýsingatækni við Árskóla í Skagafirði. Tilefnið er andstaða kennara við Spinnera eða snældur og krafa þeirra um bann við notkun snældanna. Ingvi Hrannar setur fram hugmyndir um hvernig nýta má snældurnar við kennslu.

Bloggfærsla Ingva Hrannars:

"Jæja skólar og kennarar.... Hvernig væri að nota hluti sem vekja áhuga barnanna í kennslu í stað þess að banna allt sem er ekki blýantur?

Hér eru 10 kennsluhugmyndir með 'snældurnar':

  1. Mæla hve lengi þær snúast að meðaltali og setja upp graf og tölfræði.
  2. Bera saman hvort þyngd hafi áhrif á snúning... hver er besta þyngdin og af hverju?
  3. Bera saman úr hverju mismunandi 'snældur' eru gerðar og hvaða áhrif hvaða efni hefur og hvers vegna.
  4. Finna meðaltal á því hve lengi 'snældur' snúast.
  5. Mæla hve marga hringi ein snælda snýst á 10 sekúndum (taka upp í 'slo-mo' myndbandi á síma eða spjaldtölvu). Mæla í framhaldi ummál snældunnar og reikna hve langt hún myndi ferðast á einni mínútu ef hún væri upp á rönd (eins og dekk)....og mæla km/klst í framhaldi fyrir eldri nemendur.
  6. Ræða með gagnrýnum hætti hvernig mannlegar gjörðir hafa áhrif á niðurstöður mælinga og rannsókna.
  7. Búa til sína eigin snældu í smíðum/hönnun t.d. með FabLab.
  8. Láta nemendur markaðssetja og auglýsa sína snældu eins og söluvöru. Búa til auglýsingu/heimasíðu. Hvað er sanngjarnt verð og hvernig/hvar er best að auglýsa? Hver er markhópurinn?
  9. Hafa rökræður um hvort, og af hverju, leyfa eigi 'snældur' í skólum.
  10. Ræða um 'snældur' út frá fyrsta lögmáli Newtons (Tregðulögmálið) sem segir að sérhver hlutur haldi áfram að vera í kyrrstöðu, eða á jafnri hreyfingu eftir beinni línu, nema kraftar sem á hann verka þvingi hann til að breyta því ástandi.

.... Ræða svo í framhaldi um af hverju snældan stöðvist og hvort eitthvað gæti verið gert til þess að hún gangi að eilífu.

Notum tækifærin og hættum að hræðast alla hluti sem voru fundnir upp eftir að við fæddumst."

Bloggsíða Ingva Hrannars

Senda póst til ADHD samtakanna