Aðalfundur ADHD samtakanna 2024 - Í kvöld

Aðalfundur ADHD samtakann verður haldinn í kvöld 16. apríl 2024.
Aðalfundur ADHD samtakann verður haldinn í kvöld 16. apríl 2024.

Boðað er til aðalfundar ADHD samtakanna fta. í kvöld þriðjudaginn 16. apríl kl. 19:30. Aðalfundurinn fer fram í hátíðarsal ADHD samtakanna, Háaleitisbraut 13, 4. hæð.

Dagskrá verður í samræmi við lög samtakanna:

  1. Félagsstjórn gerir grein fyrir störfum samtakanna á liðnu starfsári.
  2. Félagsstjórn leggur fram endurskoðaða reikninga samtakanna fyrir liðið ár til samþykktar. Reikningsár samtakanna er almanaksárið.
  3. Lagabreytingar - tillögur þurfa að berast skrifstofu ADHD samtakanna amk viku fyrir aðalfund.
  4. Kosning stjórnar - kosið verður í embætti gjaldkera, ritara, tveggja stjórnarmanna og eins varamanns í stjórn til ársins 2026, samhvæmt lögum félagsins - sjá núverandi stjórn og kjörtímabil stjórnarfólks.
  5. Kosning tveggja félagslegra skoðunarmanna til eins árs í senn.
  6. Ákvörðun félagsgjalda.
  7. Önnur mál.

Möguleg framboð til stjórnar og lagabreytingartillögur má senda til skrifstofu samtakanna í netfang adhd@adhd.is

Allir fullgildir félagsmenn ADHD samtakanna á aðalfundardegi geta mætt og tekið þátt í aðalfundarstörfum. Hægt er að ganga í samtökin hér.