Aðalfundur ADHD samtakanna verður 28. apríl kl. 19:00
Boðað er til aðalfundar ADHD samtakanna fta. þriðjudaginn 28. apríl nk. kl. 19:00. Aðalfundurinn fer fram í Gerðubergi 3-5, 111 Reykjavík og eru áhugasamir hvattir til að skrá sig á Facebook viðburð aðalfundarins svo áætla megi mætingu - skráning hér.
Dagskrá verður í samræmi við lög samtakanna:
- Félagsstjórn gerir grein fyrir störfum samtakanna á liðnu starfsári.
- Félagsstjórn leggur fram endurskoðaða reikninga samtakanna fyrir liðið ár til samþykktar. Reikningsár samtakanna er almanaksárið.
- Lagabreytingar - tillögur þurfa að berast skrifstofu ADHD samtakanna amk viku fyrir aðalfund.
- Kosning stjórnar - í samræmi við lög félagsins - sjá núverandi stjórn og kjörtímabil stjórnarfólks.
- Kosning tveggja félagslegra skoðunarmanna til eins árs í senn.
- Ákvörðun félagsgjalda.
- Önnur mál.
Möguleg framboð til stjórnar og lagabreytingartillögur má senda til skrifstofu samtakanna í netfang adhd@adhd.is
Allir fullgildir félagsmenn ADHD samtakanna á aðalfundardegi geta mætt og tekið þátt í aðalfundarstörfum. Hægt er að ganga í samtökin hér.