ADHD er snilld! Opinn spjallfundur í kvöld!

Hákon Helgi Leifsson, snillingur.
Hákon Helgi Leifsson, snillingur.

ADHD er snilld! ADHD samtökin bjóða upp á opinn spjallfund, um jákvæðar hliðar ADHD og litríkt líf fólks með ADHD, miðvikudaginn 20. febrúar nk. kl. 20:30. Fundurinn verður í fundarsal samtakanna að Háaleitisbraut 13 - IV.hæð og er ætlaður fólki með ADHD, aðstandendum þeirra og öllu áhugafólki um ADHD.

Umsjón með fundinum hefur Hákon Helgi Leifsson, snillingur og stjórnarmaður í ADHD samtökunum, sem skrifaði áhugaverða grein um sama efni fyrir skemmstu - sjá hér: https://bit.ly/2GHVoeZ. Þar segir Hákon Helgi m.a. þetta:

"Við erum öll svo vön því að heyra það neikvæða um ADHD. Fréttir litaðar um meinsemdir svífa inn í vit hins almenna borgara og hefur áhrif til hins verra. En hvað um hið góða, fallega, fyndna og hið ótrúlega skemmtilega sem alltaf er áberandi í hug okkar, gjörðum og hjörtum?

Til þess að komast nær fullyrðingu titilsins verð ég að snerta á hinu samtímis. En það er eiginlega ADHD í hnotskurn. ADHD er heilkenni jaðranna, getur verið eins svart og desembernótt á miðhálendinu eða hvítt eins og nýfallinn snjór á aðfangadagsmorgni."

Með virkri þátttöku fundargesta gefst gott tækifæri til að læra af reynslu annarra, heyra skemmtilegar og uppbyggjandi reynslusögur og efla styrkleika hvers og eins. Á fundinum verður einnig hægt að nálgast bækling samtakanna og annað fræðsluefni.

Allir eru velkomnir, félagsmenn sem aðrir. Það verður heitt á könnunni og að sjálfsögðu kostar ekkert að taka þátt.

Spjallfundir ADHD samtakanna eru fyrsta og þriðja miðvikudag í hverjum mánuði og má sjá dagskrá vorannar 2019 hér: Spjallfundir ADHD samtakanna vorið 2019.

Hlökkum til að sjá ykkur sem flest.