ADHD krakka rannsókn: Snillingarnir og Krakkaráðgjöfin fyrir 10-12 ára börn með ADHD

Haustið 2026 fer aftur af stað rannsókn á sérhæfðum inngripum fyrir börn með ADHD í 5.-7.bekk. Þeir þátttakendur sem hafa áhuga á að skrá sig í rannsóknina og uppfylla skimunar skilyrði verður úthlutað með slembivali (e. randomized) plássi á Snillingunum (sérhönnuðu hópnámskeiði fyrir börn með ADHD) eða plássi í Krakkaráðgjöfinni (einstaklingsráðgjöf í tilfinningastjórnun, félagsfærni og lausnaleit fyrir börn með ADHD). Sérhæfð inngrip fyrir börn og fjölskyldur barna með ADHD eru í stöðugri þróun og því er mikilvægt að rannsaka hvaða úrræði virka vel, hvað virkar best fyrir hvern og hvers vegna. Rannsókninni er stýrt af dr. Dagmar Kr. Hannesdóttur, barnasálfræðings og dósents við Háskóla Íslands í samstarfi Sálfræðideildar HÍ og Geðheilsumiðstöðvar barna (GMB) hjá Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins.

Rannsóknin okkar snýst um að skoða áhrif á samskiptafærni, tilfinningastjórn og líðan hjá börn með ADHD sem fá þessi inngrip. Bæði Snillinganámskeiðið og Krakkaráðgjöfin verða haldin í janúar-apríl 2027, en skimun inn í rannsóknina á sér stað í október-desember 2026. Við bjóðum bæði foreldrum og börnum sem uppfylla skilyrði skimunar að taka þátt í rannsókninni með því að fylla út spurningalista á netinu fyrir inngrip, eftir inngrip og aftur 6 mánuðum eftir inngripið. Það er frjálst að svara öllum eða sumum spurningalistum fyrir og eftir inngrip en í hvert sinn sem foreldrar og börn svara listunum fá þau sitthvort gjafabréfið í bíó. Ef barnið þitt hefur klárað frumgreiningarferli fyrir ADHD hjá sálfræðingi, er í 5.-7.bekk, býr á höfuðborgarsvæðinu eða nálægt því og þið hafið áhuga á að sækja um þátttöku í rannsókninni, sendið þá póst á adhdinngrip@gmail.com

Með von um góðar undirtektir,
Dagmar Kr. Hannesdóttir
Dósent við Sálfræðideild HÍ
Barnasálfræðingur á Geðheilsumiðstöð barna