ADHD og daglegar áskoranir - Spjallfundur í Eyjum

Spjallfundur í Eyjum um ADHD og daglegar áskoranir
Spjallfundur í Eyjum um ADHD og daglegar áskoranir
ADHD Eyjar halda opinn spjallfund í Vestmannaeyjum um ADHD og daglegar áskoranir, fimmtudaginn 25. febrúar kl. 17:30-19:00. Fundurinn er öllum opinn á meðan húsúm og sóttvarnarreglur leyfa og fer hann fram í fundarsalnum á flugvelli Vestmannaeyja (gengið er inn vestanmegin) 
 

Sigurlaug Vilbergsdóttir, þroskaþjálfi og einhverfuráðgjafi mun fjalla um ADHD og daglegar áskoranir og nefndir erindi sitt „Að vera sunnan við sig“. Hún mun fjalla um hegðun og líðan einstaklings og hvernig hún hefur áhrif allt daglegt líf. Álag getur birst við ýmsar aðstæður og við misjöfn tilefni. Aðlögunarfærni og þrautseigja hafa mikil áhrif á getu til að takast á við misjöfn verkefni í lífinu. Skipulag og fyrirsjáanleiki tryggja best það öryggi sem einstaklingur þarf til að ná árangri við dagleg verkefni. Einnig þarf hver og einn að nýta styrkleika sína og áhugasvið til að tapa aldrei gleðinni. 

Hér má sjá Facebook síðu ADHD eyjar

Skráðu þig strax á Facebook viðburð spjallfundanna og fáðu áminningu þegar fundurinn nálgast Skráning hér 

Við bendum líka á upptökur af nokkrum fræðslufundum ADHD samtakanna um ýmis ADHD málefn sem nálgast má hér.

Gerast félagsmaður. Hægt er að ganga í ADHD samtökin á meðfylgjandi síðu:
https://www.adhd.is/is/styrkja/gerast-felagsmadur-beintengt

Fjölmennum, fræðumst og skiptumst á reynslusögum og skoðunum um líf með ADHD.