Loka áminning - Fræðslu- og sjálfsstyrkingarnámskeið fyrir ungmenni með ADHD.

ADHD og Ég er helgarnámskeið sem er samtals 5 klst. og er hvorum degi skipt upp í minni verkefni og umræður með reglulegu uppbroti og heilahvíld. Námskeiðin hafa þau markmið að þátttakendur öðlist meiri skilning á ADHD röskuninni og hvernig hægt er að yfirstíga hindranir sem hún veldur, fái fleiri verkfæri sem nýtast í samskiptum og stuðla að bættri líðan, skilji að öll geri mistök og hvernig má nýta þau til að læra af og þekkja betur tilfinningar sínar og kynnist aðferðum til að efla tilfinningastjórnun.

Eftir námskeiðið fá aðstandendur upplýsingar og leiðbeiningar um efnið sem farið er yfir á námskeiðinu og tillögur að áframhaldandi vinnu með sínu barni. Umsjónarmenn námskeiðsins eru Jóna Kristín Gunnarsdóttir grunnskólakennari og Paula Newman, BA sálfræði og MPH Lýðheilsufræði.

Námskeiðunum er skipt eftir aldri og kyni og má finna frekari upplýsingar hvenær hvert námskeið er og hvernig á að skrá sig.


ADHD og ég - Strákar 10-12 ára

Námskeiðið er helgarnámskeið, er samtals 5 klst. og er kennt dagana 9. og 10. september frá 10:00 til 12:30.

Skráningarform og ítarlegri upplýsingar má finna hér.

ADHD og ég - Stelpur 10-12 ára

Námskeiðið er helgarnámskeið, er samtals 5 klst. og er kennt dagana 9. og 10. september frá 13:00 til 15:30.

Skráningarform og ítarlegri upplýsingar má finna hér.

ADHD og ég - Strákar 13-15 ára

Námskeiðið er helgarnámskeið, er samtals 5 klst. og er kennt dagana 23. og 24. september frá 10:00 til 12:30.

Skráningarform og ítarlegri upplýsingar má finna hér.

ADHD og ég - Stelpur 13-15 ára

Námskeiðið er helgarnámskeið, er samtals 5 klst. og er kennt dagana 23. og 24. september frá 13:00 til 15:30.

Skráningarform og ítarlegri upplýsingar má finna hér.