ADHD og ég - Strákar 10-12 ára

Er þú með strák á aldrinum 10-12 ára sem vill læra að vinna með styrkleika sína og hvernig á að yfirstíga hindranir? Þá gæti ADHD og ég verið svarið fyrir hann. Enn eru sæti laus á námskeiðið, sem er helgarnámskeið og fer fram dagana 25. og 26. febrúar í húsnæði ADHD samtakanna, Háaleitisbraut 13, 4. hæð.

Á námskeiðinu er farið yfir birtingarmyndir ADHD og þátttakendur læra leiðir til að kortleggja hvernig þær birtast hjá þeim. Með auknum skilningi eykst getan til að finna hvaða styrkleika þeir hafa og hvaða þætti þarf að styrkja, t.d. félagsfærni, tilfinningastjórnun og jákvæðari sjálfsmynd.

Markmið námskeiðsins er að þátttakendur;

  • Öðlist meiri skilning á ADHD-röskuninni og hvernig hægt er að yfirstíga hindranir sem hún veldur t.d. með aukinni hreyfingu, rútínu, slökun og matarræði
  • Efli færni í samskiptum og geti tileinkað sér að stoppa og hugsa áður en þeir bregðist við
  • Fái fleiri verkfæri sem nýtast í samskiptum og stuðla að bættri líðan
  • Skilji að allir geri mistök og hvernig má nýta þau til að læra af
  • Þekki betur tilfinningar sínar og kynnist aðferðum til að efla tilfinningastjórnun
  • Námskeiðið er helgarnámskeið og er samtals 5 klst. og er hvorum degi skipt upp í minni verkefni og umræður með reglulegu uppbroti og heilahvíld.

Frekari upplýsingar og skráning hér: https://www.adhd.is/is/namskeid-og-spjallafundir/adhd-og-eg-strakar