ADHD og konur

ADHD og konur

Sigrún Jónsdóttir, ADHD markþjálfi, námskeiðahaldari og stjórnarkona í ADHD samtökunum ætlar að koma og fræða okkur um ADHD og konur sem er hennar hugðarefni. Gríðarlegur fjöldi kvenna hefur ekki fengið greiningu á ADHD og er það ein af ástæðunum fyrir því að þær eru einn stærsti hópurinn sem tekst á við kulnun í dag. Hvað er til ráða og hvar á að byrja.

Allir eru velkomnir, félagsmenn sem aðrir. Það verður heitt á könnunni og að sjálfsögðu kostar ekkert að taka þátt. Fundurinn fer fram í húsnæði grunnskólanns í Hveragerðisbæ, Skólamörk 6. fimmtudaginn 15. september klukkan 19:30 Skráðu þig á Facebook á viðburð spjallfundarins og fáðu áminningu. https://fb.me/e/3TL6DNwiR 

Fjölmennum, fræðumst og skiptumst á reynslusögum og skoðunum um líf með ADHD.

Hlökkum til að sjá ykkur sem flest!

ADHD Suðurland