ADHD og náin sambönd

Gagnkvæmur skilningur er mikilvægur í parasamböndum sérstaklega þar sem ADHD kemur við sögu. 💛  Hér má lesa örlítið um ADHD í nánum samböndum eftir Kristbjörgu Konu Kristjánsdóttur, ADHD markþjálfa og Önnu Elísu Gunnarsdóttur, félagsráðgjafa. Fyrir þau sem vilja fræðast meira verða ADHD samtökin með fræðslunámskeið um ADHD og náin sambönd þann 4. mars. Á námskeiðinu munu Kristbjörg Kona og Anna Elísa fara yfir það helsta sem tengist nánum samböndum og ADHD.

Markmið námskeiðsins er að auka gagnkvæman skilning á birtingarmyndum ADHD í parasambandi og skapa vettvang fyrir samtal og betri samskipti til að stuðla að bættum lífsgæðum. Á námskeiðinu öðlist þátttakendur dýpri þekkingu á ADHD, kostum þess og áskorunum. Við skoðum hvernig ADHD hefur áhrif á samskipti og daglegt líf og reifum leiðir til að styðja við báða einstaklinga í sambandinu. Á námskeiðinu fléttum við saman fræðslu, umræðum og verkefnavinnu ásamt dæmum úr daglegu lífi.

Námskeiðið er opið öllum sem vilja auka vitneskju sína um ADHD og náin sambönd, bæði pör og einstaklingar velkomin.

Hægt er að lesa meira um námskeiðið og skrá sig hér!