ADHD Reykjavík 8. nóvember Fræðslufundur - ADHD og konur

 
 
Þann 8. nóvember verður haldinn fræðslufundur þar sem Sigrún Jónsdóttir, ADHD markþjálfi, námskeiðahaldari og stjórnarkona í ADHD samtökunum kemur og fræðir okkur um ADHD og konur sem er hennar hugðarefni. Gríðarlegur fjöldi kvenna hefur ekki fengið greiningu á ADHD og er það ein af ástæðunum fyrir því að þær eru einn stærsti hópurinn sem tekst á við kulnun í dag. Hvað er til ráða og hvar á að byrja?
Allir eru velkomnir, félagsmenn sem aðrir. Það verður heitt á könnunni og að sjálfsögðu kostar ekkert að taka þátt. Fundurinn fer fram í húsnæði ADHD samtakanna Háaleitisbraut 13, 4.hæð.
 
Frekari upplýsingar má finna á facebook síðu: 
 
Fjölmennum, fræðumst og skiptumst á reynslusögum og skoðunum um líf með ADHD.
Hlökkum til að sjá ykkur sem flest!
 
ATH! Hægt er að ganga í ADHD samtökin á heimasíðu samtakanna: https://www.adhd.is/is/styrkja/gerast-felagsmadur-beintengt
 
ADHD Reykjavík