Aðstandendanámskeið 6-12 ára

Fræðslunámskeið fyrir aðstandendur barna með ADHD frá 6 til 12 ára aldri verður haldið hautið 2023 í húsakynnum ADHD samtakanna, Háaleitisbraut 13, 4. hæð og í gegnum fjarfundarbúnað.

Námskeið er haldið tvo laugardaga i senn frá kl. 10:00-15:00 dagana 4. og 11. nóvember 2023.

Á námskeiðinu er lögð áhersla á að þátttakendur öðlist góðan skilning á ADHD röskunni og fái einföld og hagnýt ráð við uppeldi barna með ADHD. Námskeiðið hentar því vel fyrir alla nána aðstandendur barna með ADHD, mömmur, pabba, fósturforeldra, stjúpforeldra, ömmur, afa og aðra nákomna. Það er mikill kostur ef allir nánustu aðstandendur geta tekið þátt.

Dagskrá má finna hér

Félagsmenn í ADHD samtökunum fá verulegan afslátt af þátttökugjaldinu, en hægt er að ganga í samtökin hér.

SKRÁNING HÉR