Akureyri: GPS-strákar - Skráning hafin

ADHD samtökin bjóða í apríl og maí upp á GPS-námskeið á Akureyri, sjálfsstyrkingarnámskeið fyrir drengi í 8. til 10.bekk, GPS sem stendur fyrir Gagnleg, persónuleg stjórntæki.

Gert ráð fyrir 10 þátttakendum á hvert námskeið.

Námskeiðsgjald er kr. 25.000,-

Skráning HÉR

Námskeiði frestað

Á námskeiðinu verður farið yfir eftirfarandi þætti:

  • Almenn fræðsla um ADHD
  • Lærðu að þekkja þitt ADHD
  • Skipulagning, námstækni og námsaðferðir
  • Félagsfærni
  • Kynvitund
  • Lífsstíll
  • Áhættuhegðun
  • Ábyrgð og stuðningur

Námskeiðið spannar 8 skipti í tveimur lotum, 2 x 4 klst. og 6 x 2 klst. auk kynningar fyrir foreldra í upphafi og lok námskeiðs.

Tveir umsjónarmenn verða með hvert námskeið, Dr. Drífa Björk Guðmundsdóttir, sálfræðingur og Elín Hoe Hinriksdóttir, sérkennari, auk gestafyrirlesara.

Kynning verður fyrir foreldra í upphafi námskeiðs, laugardaginn 30. apríl 2016 og í lok námskeiðs verða foreldrar aftur boðaðir á fund með umsjónarmönnum, laugardaginn 14. maí.

Dagskrá GPS-námskeiðs fyrir drengi í 8.-10.bekk hefst laugardaginn 30. apríl 2016 og lýkur laugardaginn 14. maí 2016.

 
    LOTA I      
Foreldrakynning   Laugardagur 30. apríl   kl. 09:30 - 10:30  
1. tími   Laugardagur 30. apríl   kl. 11:00 - 15:00  
2. tími   Sunnudagur 01. maí   kl. 17:00 - 19:00  
3. tími   Mánudagur 02. maí   kl. 17:00 - 19:00  
4. tími   Þriðjudagur 03. maí   kl. 17:00 - 19:00  
    LOTA II      
5. tími   Miðvikudagur 11. maí   kl. 17:00 - 19:00  
6. tími   Fimmtudagur 12. maí   kl. 17:00 - 19:00  
7. tími   Föstudagur 13. maí   kl. 17:00 - 19.00  
8. tími   Laugardagur 14. maí   kl. 11:00 - 15:00  
Foreldrafundur   Laugardagur 14. maí   kl. 16:00 - 17:00  

 

Senda fyrirspurn til ADHD samtakanna