Allt í kerfi?

Málefnahópur Öryrkjabandalags Íslands um heilbrigðismál boðar til málþings til að meta reynsluna af nýju greiðsluþátttökukerfi í heilbrigðisþjónustu.

Nýtt greiðsluþátttökukerfi var tekið í notkun 1. maí 2017.

Yfirlýst markmið með kerfinu var að lækka kostnað þeirra sem nota heilbrigðisþjónustu mest. Hámarksþök voru sett á kostnað lífeyrisþega og almennra notanda, auk þess sem sjúkra-, iðju- og talþjálfun voru færð inn í kerfið. Margt er þó enn óniðurgreitt, svo sem tannlækningar og sálfræðiþjónusta.

Málefnahópur ÖBÍ um heilbrigðismál heldur málþingið til að meta reynsluna af greiðsluþátttökukerfinu á ársafmæli þess og skoða framtíð þess.

Málþingið verður á Grand Hótel, þriðjudaginn 29. maí, kl. 13-15.

Hér má skrá sig á málþingið


Dagskrá:

13:00   Málþingið sett
    Emil Thóroddsen, formaður málefnahóps ÖBÍ um heilbrigðismál
     
13:10   Ávarp
    Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra
     
13:25   Betur má ef duga skal
    Henný Hinz, aðalhagfræðingur ASÍ
     
13:50   Reynsla notanda
    Óstaðfest
     
14:00   HLÉ
     
14:10   Jafn aðgangur að góðri heilbrigðisþjónustu
    Steingrímur Ari Arason, forstjóri Sjúkratrygginga Íslands
     
14:35   Reynsla notanda
    Þorbera Fjölnisdóttir
     
14:45   Samantekt og íhugun um framtíð kerfisins
     
15:00   Málþingi slitið



Hér má skrá sig á málþingið


Vefur Öryrkjabandalags Íslands

Senda póst til ADHD samtakanna